Beint í efni
En

Ljúffengt Páska engjaþykkni í nýjum umbúðum

Það vekur jafnan mikla lukku þegar Páska engjaþykknið kemur í verslanir og er því einstaklega gaman að segja frá því að nú er þessi bragðgóði eftirréttur kominn í nýjar og litríkar umbúðir. Skemmtileg hönnun prýðir lok dósarinnar og má nú sjá eyru páskahérans heilsa hverjum þeim sem ætlar að gæða sér á ljúffengu innihaldinu. Leyfðu þér smá eftirrétt.

Sjá nánar

Gott í matinn um páskana

Það er óhætt að segja að það sé vor í lofti nú þegar páskahátíðin er á næsta leiti og fermingarundirbúningur í fullum gangi á mörgum heimilinum. Við lumum á alls kyns uppskriftum sem gætu veitt þér og þínum innblástur.

Sjá nánar

Fernuflug

Mjólkursamsalan hefur frá árinu 1994 beitt sér fyrir eflingu móðurmálsins með fjölbreyttum leiðum og hafa stærstu og sýnilegustu verkefni okkar verið íslenskuátökin á mjólkurfernum MS. Mjólkurfernurnar hafa þannig verið nýttar sem vettvangur málræktar, tjáningar og sköpunar og því var ákveðið að endurvekja textasamkeppni grunnskólanema, Fernuflug, á haustmánuðum 2023.

Sjá nánar

Þitt er valið

Öll viljum við borða hollan og góðan mat. MS býður upp á breitt úrval af næringarríkum mjólkurvörum, allt frá smjöri og ostum yfir í skyrdrykki og jógúrt. Í dag er svo komið að neytendur hafa fjölbreytt val í öllum helstu vöruflokkum MS og höfum við unnið markvisst að því síðustu ár að minnka hlutfall viðbætts sykurs í afurðum okkar. Rúmlega 92% af allri mjólk sem kemur til MS fer í hreinar afurðir eða vörur án viðbætts sykurs.

Við erum MS

Mjólkursamsalan er fjölbreyttur vinnustaður og óhætt að segja að ein helsta auðlind MS sé mannauðurinn. Hjá okkur starfa um 450 starfsmenn um land allt sem mynda marga ólíka en samheldna hópa sem eiga það sameiginlegt að búa yfir mikilli reynslu, færni og þekkingu í sínum störfum.
Meginmarkmið okkar er ánægt starfsfólk sem hefur skýra ábyrgð og góða sérþekkingu á sínu sviði sem saman vinnur sem ein liðsheild að markmiðum fyrirtækisins.

Í góðri sátt við náttúru og samfélag 

Mjólkursamsalan einsetur sér í allri starfsemi sinni, allt frá söfnun mjólkur frá framleiðendum til framleiðslu og dreifingar fullunninnar vöru til viðskiptavina, að starfa í sátt við umhverfi sitt og náttúru landsins hverju sinni. Við leitumst við að endurspegla umhverfisvæn sjónarmið í öllum skrefum virðiskeðjunnar og leggjum ríka áherslu á bestu umgengni okkar til verndar umhverfinu og náttúru landsins.

Til að ná sem bestum árangri í umgengni við umhverfi og lífríki, leggur MS megináherslu á eftirtalda þætti sem tengjast umhverfisvernd með beinum hætti: loftlagsmál, vatnsverndar- og frárennslismál og umbúða-, aðfanga- og úrgangsmál.