Markþjálfanám í fjarnámi - Það besta kallað fram!

Það besta kallað fram!  

(e. Bringing Out The Best)

Fjarnám fyrir þá sem vilja sigra sjálfan sig og læra að hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama. Í markþjálfanámi læra nemendur að skilja betur og vinna með þau öfl sem eru ráðandi þegar tökum og fylgjum eftir mikilvægum ákvörðunum. Nemandinn lærir að færni hans í hlutverki markþjálfa snýst ekki um hvað hann kann eða gerir - heldur í því hver hann er.  

Markþjálfanám í fjarnámi

Það hefur aldrei verið eins mikil þörf fyrir markþjálfa eins og nú. Einhvern sem getur liðsinnt öðrum í að ná áttum, hjálpað þeim að finna tækifæri þar sem hindranir virðast allt um kring og finna jákvæðni í eigin huga þegar bölsýnin hefur verið lengi í sviðsljósinu. Það sem bíður margra er ný heimsmynd þar sem þeir munu þurfa aðstoð við að finna nýja stefnu og forgangsraða upp á nýtt.

Í markþjálfanámi öðlast nemendur skýrari sýn á sjálfan sig og lærir að skilja þau öfl sem ráða því hvaða ákvarðanir við tökum eða okkur skortir hugrekki til að taka. Markþjálfinn lærir að færni hans í hlutverkinu snýst ekki um hvað hann kann eða hvað hann gerir, heldur hver hann er.

Markþjálfunarnám Profectus er hagnýtt og þroskandi nám bæði fyrir þá sem vilja nýta sér markþjálfun í starfi sínu og þá sem hyggja á alþjóðlega vottun sem sjálfstætt starfandi markþjálfar. Námið er haldgóð viðbót við alla þá menntun og/eða reynslu sem þú hefur. Markþjálfun er ein áhrifaríkasta leiðin sem um getur til að skapa vöxt og auka árangur - bæði hjá þér og öðrum. Lykilhlutverk markþjálfa er að vera í senn styðjandi og áskorandi við að hjálpa fólki að ná krefjandi markmiðum og innleiða breytingar með árangursríkum hætti.

Markþjálfanám í fjarnámi á vorönn 2023

  • 15. mars til 10. maí 2023.
    Kennt er á mánudögum frá 18:00 til 20:00 og á miðvikudögum frá 17:00 til 21:00 í átta vikur.
    (Mánudagar eru kennsludagar þar sem farið er yfir nýtt efni. Miðvikudagar eru verkefna- og æfingadagar.)

 
 
 
Hér getur þú sótt
bækling með öllum
nánari upplýsingum
um fjarnámið.
 

Nánari upplýsingar um kennsludaga og tímasetningar:

(Í maí verða hér komnar inn nánari upplýsingar um hvað verður tekið fyrir hvern dag ásamt upplýsingum um þá kennara sem munu kenna þá daga)

Eftir námið hefur þú:

  • Yfirgripsmikla þekkingu á öllum 8 hæfnisþáttum ICF (International Coaching Federation)
  • Lært að skilja og vinna markvisst með markþjálfunarferlið
  • Markþjálfað undir leiðsögn vottaðra PCC-markþjálfa
  • Séð að minnsta kosti 3 vottaða markþjálfa að störfum
  • Lært að minnsta kosti fimm mismunandi aðferðir við að markþjálfa
  • Lært tengslamyndun og jákvæða endurgjöf
  • Lært að skapa og viðhalda trausti og nærveru í samskiptum
  • Lært djúpa hlustun (1. 2. og 3. stig)
  • Lært hvernig hægt er að nýta áhrifamátt speglunar í samskiptum
  • Lært spurningatækni - hvernig hægt er leita nýrra lausna með kraftmiklum spurningum
  • Lært nokkrar mismunandi aðferðir við markmiðasetningu
  • Fengið NBI-huggreiningu og 8 bls. skýrslu með þínu hugsniði
  • Lært að nýta persónugreiningar við markþjálfun
  • Lært að þekkja og virða siðareglur ICF
  • Lært bein tjáskipti – að tala um hlutina eins og þeir eru
  • Lært að greina og bregðast við hugskekkjum
  • Fengið markþjálfun frá samnemendum og vottuðum ICF-markþjálfa
  • Lært að nota og vinna með verkfæri Profectus, tilfinninga-, gilda-, styrkleika- og spurningaspjöld
  • Farið í gegnum viðamikla sjálfsskoðun og kortlagt styrkleika þína og þróunarsvið
  • Lokið þeim ACSTH (Approved Coach Specific Training Hours) tímum sem þarf til að sækja um ACC-réttindi hjá ICF
  • Lært hvernig hægt er að nýta nýjustu uppgötvanir í taugavísindum (e. neuroscience) til að auka áhrifamátt markþjálfunar
  • Öðlast gjaldgöngu í ICF-Iceland og samfélag markþjálfa á Íslandi
  • Tækifæri á að sækja og viðhalda þekkingu þinni (þér að kostnaðarlausu) með því að mæta á „Fræðslu hittinga“ fjórum sinnum á ári hjá Profectus - þar sem farið er dýpra í markþjálfunarfræðin
  • Sjö af tíu mentor-markþjálfunartímum sem þarf til að sækja um ACC-vottun frá ICF (þér að kostnaðarlausu).

Efnistök og yfirferð námsins í fáum orðum

(Myndræn framsetningu finnur þú HÉR)

Vika 1 - Hvað er markþjálfun og hvað er hún ekki?

Eftir daginn hafa nemendur fengið að sjá stóru myndina og fengið að smakka á markþjálfasamtali.

Vika 2 - Hæfnisþættirnir og samtalsformið

Eftir daginn hafa nemendur kynnst átta hæfnisþáttum ICF og öðlast skilning á samtalsforminu.

Vika 3 - Virk hlustun og kraftmiklar spurningar

Eftir daginn hafa nemendur lært að hlusta með öllum skilningarvitum og lært að spyrja kröftugra spurninga.

Vika 4 - Markmið, yfirsýn, skipulag og aðgerðir

Eftir daginn hafa nemendur góðan skilning á mikilvægi aðgerðamiðaðrar útkomu og lært mismunandi leiðir við markmiðasetningu

Vika 5 - 360° hugsun og taugavísindi

Eftir daginn hafa nemendur dýpri skilning á hvernig þeir (og aðrir) hugsa og hvaða áhrif það hefur að geta “lesið hugsanir”.

Vika 6 - Hugskekkjur, vitundarsköpur og bein tjáskipti

Eftir daginn hafa nemendur aukið skilning á hugskekkjum, þegar raunveruleikinn er á skjön við hugmyndir markþega auk þess sem farið er með áhrifaríkari hætti í vitundarsköpun og mikilvægi þess að tala um hlutina á mannanáli - um það sem raunverulega skiptir mestu máli.

Vika 7 - Viðhorf, tilfinnningar, styrkleikar og gildismat

Eftir daginn hafa nemendur lært að vinna með verkfærin sem fylgja með í náminu, Tilfinninga,- Styrkleika- og Gildaspjöld.

Vika 8 - Fjölbreyttari leiðir, kynningar og samantekt

Eftir daginn hafa nemendur lært fleiri og fjölbreyttari leiðir til að markþjálfa og hafa öðlast skýrari sýn á hvernig námið muni nýtast þeim

Vinnuframlag, ástundun og viðvera nemenda

Reikna má með að vinnuframlag, ástundun og viðvera nemenda sé að jafnaði 10-12 klst. á viku 

(Myndræn framsetning HÉR)

4 klst. - Kennsla:

Kennt er alla miðvikudaga í átta vikur frá 22. apríl frá 17:00-21:00

Nemendur hittast í rauntíma á fjarfundi í ZOOM þar sem kennari fer yfir efni dagsins ásamt því að vinna ýmis verkefni. Nemendur markþjálfa hvorn annan og fylgjast einnig með kennara markþjálfa nemanda.

2 klst. - Q&A (spurningar og svör) auk markþjálfaæfinga

Q&A (spurningar og svör): Spurningum og athugasemdum er svarað á fjarfundi alla mánudaga frá 18:00-20:00 auk þess sem farið er í mismunandi æfingar í markþjálfun sem tengjast þeim efnistökum sem búið er að fara yfir vikunni áður.

Nemendur eru hvattir til að senda spurningar inn í Tankinn, kennslukerfið okkar, sem kennari safnar saman og svarar á fjarfundi með nemendum. Þessir fjarfundir eru allir teknir upp og eru aðgengilegir í Tankinum í framhaldinu.

1-2 klst. Verkefnavinna:

Í hverri viku vinna nemendur ýmis verkefni sem tengjast efnistökum vikunnar.

Í markþjálfanáminu er mikil áhersla lögð á að slípa til aðalverkfæri markþjálfans - hann sjálfan. Þess vegna er talsvert um sjálfsvinnu þar sem nemandinn smakkar þau meðöl sem hann mun bjóða öðrum uppá að námi loknu.

1-2 klst. - Markþjálfun:

Nemendur æfa sig í að markþjálfa a.m.k. 1-2 klst. í viku frá og með viku 3. Áður en námið hefst er mælst til að nemendur hafi fundið 3-4 aðila sem vilja verða þeirra „tilraunadýr“ og þiggja markþjálfun 2-4 sinnum frá nemendanum á meðan náminu stendur.

Námið er byggt á víðtækri reynslu og þekkingu

Það sem gerir markþjáfanámið eins áhrifaríkt og raun ber vitni er að í náminu ferð þú líka í gegnum það sjálfskoðunar- og breytingaferli sem þú lærir að leiða aðra í gegnum. Síðustu 5 ár höfum við hjá Profectus útskrifað á fjórða hundrað markþjálfa hér á Íslandi, í Suður Afríku og á Írlandi. Auk þess hafa stjórnendur margra fyrirtækja bæði hérlendis og erlendis tekið leiðtoganámskeið Profectus „Leiðtoginn sem markþjálfi“ (e. Leader as a Coach) sem byggir að miklu leiti á lykilþáttum markþjálfunar. Það námskeið byggir nær alfarið á bókinni „The Whole Brain Leader“ sem Profectus gaf út 2015 og vinnubókinni "Coaching - Bringing out the best" eftir yfirkennara námsins, Ingvar Jónsson.

Ingvar hefur skrifað fleiri bækur sem tengjast markþjálfun. Árið 2018 gaf Mál og Menning út bókina Sigraðu sjálfan þig sem þýdd hefur verið yfir á ensku og ber nafnið Discover Your Inner Viking. Þann 4. janúar 2020 kom út fjórða og sú ítarlegasta sem hann hefur skrifað með hugmyndafræði markþjálfunar að leiðarljósi  „Hver ertu og hvað viltu?“

Allt náms- og kennsluefni sem er notað í Markþjálfanámi Profectus höfum við sjálf þróað frá upphafi og gerum enn. Við höfum alltaf lagt mikinn metnað í að viðhalda náminu og námsefninu þannig að tryggt sé að við séum ávallt í fremstu röð meðal jafningja og getum því miðlað til nemenda okkar því nýjasta sem er að gerast í heimi markþjálfunar. 

Sérhannað stafrænt kennslukerfi á netinu

Allir nemendur fá aðgang að kennslukerfi Profectus í heilt ár eftir að námi þeirra lýkur. Í kerfinu hafa þeir aðgang að námsgögnum, verkefnum og öðru stuðningsefni svo sem kennslumyndböndum, fag- og fræðigreinum ásamt öllum verkefnum sem tengjast markþjálfanáminu. Þar geta þeir einnig komið á og viðhaldið sambandi við núverandi og fyrrverandi nemendur Profectus, bæði hérlendis og erlendis.  

Framúrskarandi námsefni

Hér má sjá það námsefni sem nemendur fá þegar þeir hefja nám í markþjálfun hjá okkur. Þó þetta sé „ekki nema“ 66 klst. námskeið þá eru efnistökin og yfirferðin meiri en fólk á að venjast. Allt námsefni okkar er skrifað, þróað og hannað af okkur. Við erum leiðandi þegar kemur að þróun verkfæra og skapandi leiða til að vinna með hugmyndafræði markþjálfunar. 

Grunnnámspakkinn:

  • 216 bls. kennslumappa með öllum skyggnum, praktískum upplýsingum og verkefnum
  • Aðgangur að kennslukerfi sem inniheldur meira en 100 kennslumyndbönd, lesefni, fræðigreinar, verkefni, sjálfspróf o.fl.
  • Geggin mín - dagbók sem heldur utan um markmið, drauma og persónulega sigra.
  • Bókin "Sigraðu sjálfan þig - aftur og aftur" (Höfundur er kennari í náminu)
  • Bókin The Whole Brain Leader. Kennir hvernig hægt er að nýta markþjálfun sem stjórnandi. (Höfundur er kennari í náminu)
  • Mikilvægustu gildin mín (framleitt af Profectus). Verkfæri sem notað er af markþjálfum til að vinna með gildi, innri áttavitanum í lífinu.
  • 107 algengar tilfinningar (framleitt af Profectus) . Verkfæri sem bæði er notað í markþjálfun og einnig til að auka tilfinningalæsi og tilfinningagreind nemenda.
  • Styrkleikarnir mínir (framleitt af Profectus) . Verkfæri sem bæði er notað í markþjálfun og einnig til að vinna markvisst með styrkleika.
  • 99 kraftmiklar spurningar (framleitt af Profectus) . Verkfæri sem notað er í markþjálfun til að hjálpa fólki að skoða stórum myndina, fá hugmyndir og hugsa lengra.

Greiðslur námgjalda

Eftir að skráning hefur borist okkur eru stofnaðar tvær kröfur í heimabanka, ein upp á 50.000,- sem er staðfestingargjald. Þegar það er greitt hefur nemandi tryggt sæti sitt í náminu. Staðfestingargjald er óafturkræft. Seinni krafan er fyrir eftirstöðvum með eindaga tveimur vikum áður en námið byrjar. Einnig eru fleiri leiðir í boði til að dreifa greiðslum ef sá kostur hentar betur.

Athygli er vakin á að nemandi sem hættir við þátttöku innan tveggja vikna fyrir nám hefur hvorki rétt til endurgreiðslu á námskeiðsgjaldi né staðfestingargjaldi.

Ef nemandi þarf að hætta við nám innan tveggja vikna fyrir nám eða eftir að nám er hafið, vegna óviðráðanlegra orsaka (til dæmis veikinda eða slyss), getur hann skráð sig í sambærilegt nám innan tveggja ára, sér að kostnaðarlausu. Það þarf að gerast í samráði við okkur og gildir einungis ef ekki er fullbókað á viðkomandi námskeið við upphaf þess. 

Greiðslumöguleikar

Ganga þarf frá greiðslu í síðasta lagi 14 dögum fyrir upphaf námskeiðs.

Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka Profectus: 0545 - 26 - 452. Kt: 410304-3760.

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á info@profectus.is 

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða. Allur kostnaður við lántöku bætist við námsgjöld.

4. Netgíró https://www.netgiro.is/ til allt að 24 mánaða.

Af hverju ættir þú að læra Markþjálfun hjá Profectus?

Alþjóðleg réttindi

Profectus eru þeir einu hér á landi sem eru með hæsta vottunarstig International Coaching Federation (ICF), sem er ACTP-vottun (e. Accredited Coaching Training Program). ACTP-vottað nám er „Allt innifalið“ markþjálfanám, það er að segja það inniheldur allt sem ICF gerir kröfu um fyrir vottun (sjá töflu hér að neðan). Helsti munurinn á ACSTH-vottuðu námi og ACTP-vottuðu námi er að þeir fræðsluaðilar sem hafa uppfyllt ströng skilyrði ACTP-vottunar, hafa einnig heimild til að meta og votta færni nemenda sinna við námslok í framhaldsnáminu miðað við PCC-færni. Standist nemendur það mat þá er það fullnægjandi undirbúningur fyrir umsókn, bæði fyrir ACC-vottun og PCC-vottun hjá ICF, allt eftir því hversu mikla reynslu (fjöldi klst. í markþjálfun) nemandi hefur öðlast.

Í grunnnámi í markþjálfun er megináhersla lögð á að nemendur öðlist haldbæran skilning á öllum þeim 8 hæfnisþáttum sem eru grunnurinn af því að verða vottaður markþjálfi. Í framhaldinu er tímabært fyrir markþjálfa að móta sér stefnu í átt að því hvernig markþjálfi hann vill verða, hvaða sviði hann vil sérhæfa sig á. Það má líkja þessu við bílpróf. Í upphafi læra allir nemendur það sem þarf til að keyra bíl, burtséð frá því hvernig þeir ætla að nýta sér það í framhaldinu.

Engin kvöð er á nemendum að fara  vottun, en við aðstoðum alla okkar nemendur í því ferli velji þeir að fara alla leið. ACC-réttindin eru ekki innifalin í verði neinna sem bjóða upp á þetta nám en við erum öllum okkar nemendum innan handar í því ferli, kjósi þeir svo.

Kennarar með djúpa þekkingu og mikla reynslu

Kennarar Profectus eru með reyndustu markþjálfum á Íslandi. Þeir sem leiða námið eru með PCC-réttindi frá ICF og um það bil 7000 klst. reynslu í markþjálfun. Á ferilskrá þeirra liggja nokkrar bækur um markþjálfun, t.d. "The Whole Brain Leader" sem nýlega var gefin út af hinu virta útgáfufyrirtæki SAGE, bókin "Sigraðu sjálfan þig" sem Vaka Helgafell gaf út 2018 og bókin "Hver ertu og hvað viltu?" gefin út af Vöku Helgafelli 2020.

Alþjóðlegt tengslanet

Profectus hefur um árabil boðið upp á staðarnám í markþjálfun erlendis, m.a. í Suður Afríku og á Írlandi. Margir íslenskir nemendur okkar hafa tengst öðrum nemendum, bæði hérlendis og erlendis þar sem þeir skiptast á að markþjálfa hvorn annan.

Eftirfylgni

3-4 sinnum á ári býður Profectus fyrrverandi nemendum sínum upp á upprifjun í fræðunum. Fyrir þá nemendur sem ætla sér í ACC-vottun geta þeir skráð þessa upprifjunartíma sem mentor-markþjálfunartíma og nýtt þegar þeir sækja um ACC-réttindin. Það má taka sjö af þeim tíu mentor-markþjálfunartímun, sem nemandi þarf að hafa áður en hann sækir um vottun, í hóp, svo lengi sem hópurinn fer ekki yfir ákveðin fjölda. Við tryggjum að svo verði ekki.

Námsgögn

Innifalið í verði námsbrautarinnar eru fjórar bækur um markþjálfun þar sem nemendur kynnast faginu frá mismunandi sjónarhornum, bæði frá sjónahorni leiðtogans og einnig venjulegs fólks sem vil meira.

Fullkomið kennslukerfi

Allir nemendur fá aðgang að Tankinum, sérsmíðuðu kennslukerfi Profectus í heilt ár eftir að námi þeirra lýkur. Í Tankinum hafa þeir aðgang að námsgögnum, verkefnum og öðru stuðningsefni svo sem kennslumyndböndum, fag- og fræðigreinum ásamt öllum verkefnum sem tengjast markþjálfanáminu. Þar geta þeir einnig komið á og viðhaldið sambandi við núverandi og fyrrverandi nemendur Profectus, bæði hérlendis og erlendis. 

Tæki og tól

Profectus hefur frá stofnun (2012) sérhæft sig í markþjálfun. Öll þjónusta sem boðið er upp á hjá Profectus er lituð af markþjálfun með afgerandi hætti. Við höfum unnið með mörgum stærstu fyrirtækjum landsins við leiðtogaþjálfun og eflandi fræðslu. Við höfum á þeirri vegferð notast við margvísleg greiningartól og viðurkenndar aðferðir sem við deilum með nemendum okkar. Við vitum hvað virkar í mismunandi aðstæðum og deilum þeirri þekkingu í orði og á borði.

Lítil yfirbygging og hagkvæmni

Við erum lítið en öflugt fyrirtæki. Við gerum hvorki út á íburð né mikilfengleika. Okkar metnaður liggur í fagmennsku, trúverðugleika, stefnufestu og færni í að ná okkar langtímamarkmiðum. Þar af leiðandi erum við einnig mjög stolt af því að bjóða okkar nám talsvert ódýrara en aðrir hér á landi. Við viljum taka það sérstaklega fram að markþjálfanámið okkar hefur staðist allar sömu gæðakröfur og miðar að því að búa nemendur okkar undir sömu vottun og aðrir sem bjóða upp á ACSTH vottað nám frá ICF bæði hérlendis og erlendis. Það sama gildir að sjálfsögðu um ACTP vottaða námið okkar!

Stutt skýringarmyndband um markþjálfun og markþjálfanám

Hvað segja nemendur okkar um námið?

Er gríðalega þakklát að hafa skráð mig í þetta nám því það hefur sko gefið mér helling. Frábærir kennarar, frábært námsefni og gott skipulag og ekki sýst magnað að fá úskrifast sem Markþjálfi. Mér fannst þetta vera sett vel upp í gegnum fjarkennslu ekki hægt setja út á það. Svo ekki síst naflaskoðun og sjálfsvinna sem er gríðalega bónus í gegnum þetta nám fer gríðarlega stollt og ánægð og þakklát inn í árið 2021 og ætla halda áfram læra hjá profectus. Því þau eru með flott nám sem standast kröfur og væntingar.

Bryndís Pètursdóttir - Viðurkenndur markþjálfi frá Profectus

 

Hver er munurinn á ACSTH-vottuðu og ACTP-vottuðu námi?

Allir fræðsluaðilar hér á landi eru með ACSTH-vottun á sínu námi. Profectus er eini fræðsluaðilinn sem hefur náð ACTP-vottun Heildarnámið hjá sér sem er fullnægjandi fyrir nemendur til að geta sótt sér ACC-vottun (fyrsta vottunarstig) og PCC-vottun (annað vottunarstig).

ACSTH-vottun

(ICF Approved Coach Specific Training Hours)

Í þessu myndbandi er farið yfir ýmislegt sem tengist vottunarferlið hjá þeim sem hafa lokið grunnnámi í markþjálfun ásamt því að útskýra muninn á Markþjálfa, Viðurkenndum markþjálfa og Vottuðum markþjálfa.

ACTP-vottun

(ICF Approved Coach Training Program)

Í þessu myndbandi er farið yfir ACTP-vottunarferlið og ávinning þess að taka Heildarnám í markþjálfun hjá Profectus.

Heildarnámið hjá Profectus (Grunnnnám og framhaldsnám tekið saman) er viðurkennt sem heilstætt nám þar sem nemendur læra ACC-færniviðmið í Grunnnáminu og PCC-færniviðmið í Framhaldsnáminu.

 

Verð: 378.000 kr. (348.000 stgr.)
Lengd: 66 klst.

Innifalið í námskeiði

  • Kennsla hjá reyndum markþjálfum (PCC) 
  • Persónuleg NBI-greining (að verðmæti 19.800)
  • Bókin “The Whole Brain Leader” (eftir Ingvar Jónsson og Sjoerd de Waal)
  • Bókin "Sigraðu sjálfan þig - aftur og aftur!" (eftir Ingvar Jónsson)
  • Gildaspjöldi, Tilfinningaspjöld , Styrkleikaspjöld og 99 kraftmiklar spurningar
  • Vönduð námsgögn og vinnubók 
  • Aðgangur að fullkomnu kennslukerfi Profectus í heilt ár eftir að náminu lýkur þar sem meðal annars er að finna meira en 100 hágæða kennslumyndbönd um markþjálfun frá Profectus þar sem hægt er að rifja upp og viðhalda þekkingu sinni.

Leiðbeinendur

Ingvar Jónsson
PCC-markþjálfi

Ingvar Jónsson

Ingvar hefur starfað við kennslu og fyrirlestrahald hér heima og erlendis síðustu 25 ár. Hann er Alþjóða markaðsfræðingur, MBA, NBI-master trainer og EQ-i Practitioner. Hann var valinn einn af 101 áhrifamestu markþjálfum í heimi á World Coaching Congress í febrúar 2020.

Ingvar er frumkvöðull í eðli sínu, hefur í gegnum tíðina þróað fjölda viðskiptahugmynda með góðum árangri. Hann þekkir því á eigin skinni hvað það er að takast á við áskoranir, fara nýjar leiðir og verðmæti þess að fá svigrúm og tækifæri til að skoða hlutina frá öðru sjónarhorni og hvað þarf til að komast upp úr djúpum hjólförum vanans. Ingvar hefur einnig starfað sem skemmtikraftur og tónlistamaður í tæp 30 ár sem endur-speglast í léttri og skemmtilegri framsetningu hans á því efni og þekkingu sem hann miðlar.

Ingvar hefur síðustu 7 ár skrifað og þróað nánast allt námsefni fyrir bæði Grunn- og Framhaldsnám Profectus. Hann er einnig rithöfundur og hefur síðustu ár skrifað nokkrar bækur sem eiga það sameiginlegt að fjalla að verulegu leyti um markþjáflun og nokkrar þeirra eru hluti af námsefni okkar. Þar má nefna: The Whole Brain Leader (2015) - Coaching - Bringing out the best (2016) - Sigraðu sjálfan þig! (2018) - Hver ertu og hvað viltu? (2020) og Sigraðu sjálfan þig - aftur og aftur! (2022)

Linda Björk Hilmarsdóttir
PCC-markþjálfi

Linda  er PCC-vottaður markþjálfi með langa reynslu í fyrirtækjarekstri, félagsmálum og verkefnastjórnun. Hún er jarðbundin og skynsöm með báða fætur á jörðinni. Hún er áskorandi og hefur litla þolinmæði fyrir tilgangsleysi og hálfkáki. 

Linda starfar í dag sem markþjálfi.

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir 
ACC-markþjálfi

Hjördís er með MSc í stjórnun og stefnumótun, BSc í hagfræði, hún er ACC-vottaður stjórnenda- og leiðtogaþjálfi, vottaður EQ-i 2.0 tilfinningagreindarþjálfi og NBI Practioner og Whole Brain Coach.  

Hjördís býr yfir áratugareynslu sem stjórnandi, ráðgjafi og greinandi. Breytinga- og krísustjórnun er hennar kjarnafærni og hún býr yfir margþættri reynslu á því sviði.