- Nám og Starfsþjálfun
- Alþjóðlega vottað Markþjálfanám
- Þjálfun og námskeið fyrir fyrirtæki
- Greiningar og Upplýsingar
- Þetta erum við
- Vefverslun
Karfan er tóm
Ásta er einn reynslumesti markþjálfi landsins og var þriðji Íslendingurinn til að öðlast MCC-færnivottun frá ICF. Hún lærði markþjálfun árið 2014 og hefur síðan þá starfað við markþjálfun, kennslu og mentorþjálfun. Á árunum 2016–2021 kenndi hún bæði í grunn- og framhaldsnámi í markþjálfun og hefur starfað sem mentor markþjálfi frá árinu 2015.
Ásta hefur mikla ástríðu fyrir því að sjá fólk vaxa og þroskast. Sjálfsþekking, styrkleikar, lífsgildi og persónuleg umbreyting eru kjarninn í hennar nálgun og hún leggur áherslu á að markþjálfun hjálpi fólki að öðlast meiri skýrleika, taka meðvitaðri ákvarðanir og verða sterkari útgáfa af sjálfu sér.
Það er ekki orðum ofaukið að Ásta hefur víðtæka reynslu. Hún hefur gegnt ábyrgðarhlutverkum innan faggreina, meðal annars í stjórn FMÍ og ICF Iceland, þar sem hún var formaður um tíma. Einnig hefur hún verið virk í faglegu starfi markþjálfa hjá Stjórnvísi, haldið ýmis námskeið og fyrirlestra og var annar umsjónarmanna hlaðvarpsins „Þekktu sjálfan þig“, þar sem sjálfsþekking, persónulegur vöxtur og markþjálfun voru í forgrunni.