Umsjón starfsdaga og hópefli

Starfsdagar og vinnustofur sem skila raunverulegum árangri

Vilt þú að næsti starfsdagur efli teymið og skili mælanlegum árangri? Profectus sérsníður og stýrir starfsdögum og vinnustofum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Við mætum ykkur nákvæmlega þar sem þið eruð stödd og hönnum daginn út frá ykkar markmiðum – allt frá faglegri efnistökum yfir í heildarumsjón.

Það sem við bjóðum:

  • Sérsniðna dagskrá: Stefnumótun, hvatning, breytingastjórnun eða teymisbygging.

  • Heildarumsjón: Fyrirlesarar, fundarstjórn, húsnæði, veitingar og skemmtun.

  • Árangursdrifna nálgun: Áratuga reynsla sem tryggir gott flæði og sterka þátttöku.

Nánari útlistun á þjónustunni

Eins og í allri okkar þjálfun leggjum við áherslu á að starfsdagarnir séu algjörlega miðaðar við þarfir og væntingar ykkar vinnustaðar.

Þökk sé víðtæku tengslaneti okkar, bæði hérlendis og erlendis, takmarkast dagurinn aldrei við okkar eigin þekkingu eða sérsvið. Við sækjum þá sérfræðinga og efnistök sem leysa ykkar áskoranir hverju sinni – hvort sem um er að ræða stefnumótunarvinnu, markmiðasetningu, breytingastjórnun eða markaðs- og ímyndarvinnu.

Umsjón frá A til Ö

Við getum tekið að okkur allan utanumhalds- og framkvæmdarhlutann svo stjórnendur og starfsfólk geti mætt sem þátttakendur og notið dagsins til fulls. Við sjáum um allt frá faglegri fundarstjórn og fyrirlesurum yfir í húsnæði, veitingar, tónlist og skemmtikrafta.

Við leggjum ríka áherslu á að vinna náið með öllum sem að deginum koma til að tryggja eðlilegt flæði, mikla orku og framúrskarandi upplifun. Áratuga reynsla okkar tryggir að starfsdagurinn verði ekki bara skemmtilegur, heldur skilji eftir sig dýrmæt verkfæri og skýra framtíðarsýn.

Hvaða árangri vilt þú ná á næsta starfsdegi hjá þínu fyrirtæki?

HVAÐ VILTU AÐ STARFSDAGURINN INNIHALDI?

Leiðbeinendur

Ingvar Jónsson
PCC-markþjálfi

Ingvar Jónsson

Með næstum þriggja áratuga reynslu af kennslu og fyrirlestrahaldi — bæði hér heima og á alþjóðavettvangi — brennur Ingvar fyrir því að hjálpa fólki að leysa úr læðingi sína bestu útgáfu. Hann býr yfir öflugum faglega bakgrunni; er með MBA frá CBS, er alþjóðlegur markaðsfræðingur, NBI-Master Trainer og EQ-i Practitioner, auk þess að hafa hlotið alþjóðleg verðlaun og viðurkenningar fyrir framlag sitt til mannauðsmála og markþjálfunar.

Undanfarin 7 ár hefur Ingvar verið heila- og hjartað á bak við námsefni Profectus, þar sem hann hefur skrifað og þróað nánast allt efni fyrir bæði grunn- og framhaldsnám okkar. Hann er einnig afkastamikill rithöfundur og hefur gefið út röð beinskeyttra bóka um forystu, persónulegan vöxt og markþjálfun – sem margar hverjar skipa stóran sess í námsefninu hjá Profectus:

  • The Whole Brain Leader (2015)

  • Sigraðu sjálfan þig! (2018)

  • Hver ertu og hvað viltu? (2020)

  • Sigraðu sjálfan þig – aftur og aftur! (2022)

  • Leiðtoginn – valdeflandi forysta (2024)

  • 100 Powerful Questions – That Will Transform Your Life! (2024)

Matti Osvald Stefánsson
PCC-markþjálfi

Matti Ósvald Stefánsson

Matti Ósvald Stefánsson er einn af reyndustu og fjölbreyttustu sérfræðingum landsins á sviði heilsueflingar, lífsstíls og markþjálfunar. Með meira en 25 ára reynslu úr þúsundum lífsstílsviðtala og áratuga reynslu af námskeiðhaldi hefur Matti einstakt lag á að hjálpa fólki að finna jafnvægi á milli líkama, sálar og huga.

Matti er með meistaragráðu í Theology (M.Th) þar sem megináherslan er á skilning á hinu mannlega, siðfræði og heimspeki. Hann hefur í rúman áratug kennt bæði í grunn- og framhaldsnámi í markþjálfun, sem gerir hann að einni helstu stoðinni í þjálfun nýrra markþjálfa á Íslandi.

Faglega vegferð sína hóf hann í Bandaríkjunum þar sem hann lærði við International Professional School of Bodywork (1988–1992) og útskrifaðist sem Holistic Health Practitioner og nuddfræðingur, ásamt því að bæta við sig sérhæfingu við Pacific College of Oriental Medicine. Hann er vottaður NLP Practitioner frá The NLP Institute of Los Angeles og er með alþjóðlega PCC-vottun sem fagþjálfi frá ICF (International Coaching Federation).

Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir

MCC-markþjálfi

Matti Ósvald Stefánsson

Ásta er einn reynslumesti markþjálfi landsins og var þriðji Íslendingurinn til að öðlast MCC-færnivottun frá ICF. Hún lærði markþjálfun árið 2014 og hefur síðan þá starfað við markþjálfun, kennslu og mentorþjálfun. Á árunum 2016–2021 kenndi hún bæði í grunn- og framhaldsnámi í markþjálfun og hefur starfað sem mentor markþjálfi frá árinu 2015.

Ásta hefur mikla ástríðu fyrir því að sjá fólk vaxa og þroskast. Sjálfsþekking, styrkleikar, lífsgildi og persónuleg umbreyting eru kjarninn í hennar nálgun og hún leggur áherslu á að markþjálfun hjálpi fólki að öðlast meiri skýrleika, taka meðvitaðri ákvarðanir og verða sterkari útgáfa af sjálfu sér.

Það er ekki orðum ofaukið að Ásta hefur víðtæka reynslu. Hún hefur gegnt ábyrgðarhlutverkum innan faggreina, meðal annars í stjórn FMÍ og ICF Iceland, þar sem hún var formaður um tíma. Einnig hefur hún verið virk í faglegu starfi markþjálfa hjá Stjórnvísi, haldið ýmis námskeið og fyrirlestra og var annar umsjónarmanna hlaðvarpsins „Þekktu sjálfan þig“, þar sem sjálfsþekking, persónulegur vöxtur og markþjálfun voru í forgrunni.