- Nám og Starfsþjálfun
- Alþjóðlega vottað Markþjálfanám
- Þjálfun og námskeið fyrir fyrirtæki
- Greiningar og Upplýsingar
- Þetta erum við
- Vefverslun
Karfan er tóm
Á tímum gerfigreindar og stöðugra breytinga eru samskipti, sjálfsþekking og tilfinningagreind stærsta samkeppnisforskot sem fyrirtæki og stjórnendur geta búið yfir.
Námskeiðið Samkeppnisforskot Tilfinningagreindar (EQ) veitir þér og þínu teymi verkfærin til að efla vinnustaðamenningu, auka traust og ná fram því besta í þínum mannauði.Eftir því sem gervigreindin (AI) tekur yfir meiri gagnaúrvinnslu, greiningar og tæknilega ferla á vinnustöðum, verður tilfinningagreindin enn mikilvægari þar sem hún er hin trausta undirstaða samskipta og samvinnu. Gervigreindin getur skrifað og greint en hún getur ekki sýnt samkennd, byggt upp tilfinningalegt öryggi, leyst samskiptavanda, stuðlað að valdeflingu eða leitt fólk af innsæi og hlýju.
Samskipti, tilfinningalegt öryggi og sjálfsvitund eru grunnurinn að virkri vinnustaðamenningu og árangursríkri stjórnun. Námskeiðið í tilfinningagreind dýpkar skilning þátttakenda á eigin viðbrögðum og kennir þeim að nýta tilfinningalega innsýn til að taka betri ákvarðanir, byggja upp traust og efla samstarf.
Byggt á EQ-8 greiningarkerfi Profectus
Námskeiðið nýtir nákvæma EQ-8 greiningu Profectus sem mælir tilfinningagreind í starfi og stjórnun. Niðurstöðurnar veita mælanlegan grunn sem hjálpar þátttakendum að umbreyta innsýn í raunverulegar og varanlegar breytingar á vinnustaðnum.
Átta lykilvíddir tilfinningagreindar sem teknar eru fyrir:
Með því að efla tilfinningagreind innan þíns fyrirtækjar tryggir þú að tæknin hlaupi ekki frá vinnustaðamenningunni. EQ-8 greiningin gefur ykkur skýran mælikvarða á raunstöðuna svo námskeiðið skili raunverulegum breytingum í daglega rekstrinum – traustari samskiptum, dýpri sjálfsþekkingu og meiri seiglu undir álagi.
Ertu tilbúin(n) að efla samkeppnisforskot þíns vinnustaðar?
Við sníðum námskeiðið nákvæmlega að þörfum og áskorunum ykkar.
Vandað námsefni byggt á bókinni „The Power of Emotional Currency - How Emotional Intelligence Shapes The Life You Build“


Með næstum þriggja áratuga reynslu af kennslu og fyrirlestrahaldi — bæði hér heima og á alþjóðavettvangi — brennur Ingvar fyrir því að hjálpa fólki að leysa úr læðingi sína bestu útgáfu. Hann býr yfir öflugum faglega bakgrunni; er með MBA frá CBS, er alþjóðlegur markaðsfræðingur, NBI-Master Trainer og EQ-i Practitioner, auk þess að hafa hlotið alþjóðleg verðlaun og viðurkenningar fyrir framlag sitt til mannauðsmála og markþjálfunar.
Undanfarin 7 ár hefur Ingvar verið heila- og hjartað á bak við námsefni Profectus, þar sem hann hefur skrifað og þróað nánast allt efni fyrir bæði grunn- og framhaldsnám okkar. Hann er einnig afkastamikill rithöfundur og hefur gefið út röð beinskeyttra bóka um forystu, persónulegan vöxt og markþjálfun – sem margar hverjar skipa stóran sess í námsefninu hjá Profectus: