Seigla og árangur (GRIT)

SEIGLA inniheldur kraftinn sem þarf til að takast á við stöðugar breytingar og vaxandi álag á tímum gervigreindar

Á tímum þar sem gervigreind (AI) og hraðar tæknibreytingar endurskilgreina vinnustaði daglega, dugar tæknileg færni ein og sér ekki lengur til að tryggja árangur.ervigreind getur greint gögn og tekið við tæknilegum verkefnum, en hún getur ekki sýnt seiglu, sýnt sjálfsaga, mætt mótlæti af hugrekki eða haldið teymi einbeittu að langtframatíðarmarkmiðum þegar áreytið er mikið.

Það sem mun skilja árangursríkustu fyrirtæki og stjórnendur framtíðarinnar frá hinum er mannlegi þátturinn – getan til að standa af sér álag, aðlagast breytingum og klára krefjandi verkefni af krafti. Námskeiðið í Seiglu (GRIT) veitir þér og þínu teymi lykilinn að þessu samkeppnisforskoti.

Árangur mælist sjaldnast í hæfileikum einum saman, heldur í getunni til að halda úthaldi, sjálfsaga og einbeitingu þegar áreyti og breytingar eru miklar. Þetta námskeið dýpkar skilning þátttakenda á eigin seiglu og veitir þeim hagnýt verkfæri til að klára stór verkefni og standa af sér mótlæti.

Nýja SEIGLU-formúlan:

GRIT formula

Hvers vegna ný og betrumbætt GRIT-formúla?

Upprunalega módelið hjá sérfræðingnum Angelu Duckworth sýndi fram á að samspil ástríðu, þrautseigju og tilgangs væri lykillinn að árangri. En í flóknum veruleika vinnustaða dagsins í dag duga þessir þættir einir og sér ekki til – það skiptir öllu máli hvernig þeim er beitt.

1. Af hverju að margfalda með Sjálfsþekkingu?

Sjálfsþekking virkar sem öflugur kraftaukandi margfaldari. Ástríða og þrautseigja án sjálfsþekkingar getur auðveldlega breyst í sjálfsblindu og þráfestu,sem leiðir til orkusóunar og jafnvel kulnunar. Þegar við margföldum með sjálfsþekkingu erum við að hámarka möguleika okkar á að starfsorku okkar sé beint í rétttari farveg, að við setjum okkur heilbrigð mörk og tökum ákvarðanir sem byggja á raunverulegum styrkleikum okkar.

2. Af hverju að deila með Meðvirkni?

Meðvirkni er hinn ósýnilega stærðfræðilega útþynning sem dregur kerfisbundið úr raunverulegri seiglu. Þegar orkan fer í að þóknast öðrum, taka ábyrgð á tilfinningum samstarfsfólks eða skortur er á skýrri markasetningu, þá leysast tækifæri okkar til vaxtar upp. Því meiri sem meðvirknin er í jöfnunni, þeim mun meira dregur úr raunverulegum framkvæmdakrafti okkar og seiglu.

Sérsniðið námskeið með 360° GRIT-greiningu

Námskeiðið byggir á 360° GRIT-greiningu Profectus. Með því að framkvæma 360° greiningu á öllum þátttakendum fyrir námskeiðið fá starfsmenn og stjórnendur dýrmæta yfirsýn og endurgjöf á eigin styrkleika og vaxtartækifæri. Það gerir okkur einnig kleift að sérsníða áherslur og efnistök námskeiðsins betur að raunverulegum þörfum hópsins.

Þær átta lykilvíddir SEIGLU sem greindar eru og teknar eru fyrir á námskeiðinu:

  1. Þrautseigja og úthald (Perseverance of Effort): Getan til að halda áfram og klára krefjandi verkefni af krafti þrátt fyrir mótlæti, þreytu eða ófullnægjandi árangur.
  2. Stöðug áhugahvöt (Consistency of Interests): Að halda skörpum fókus á langtframatíðarmarkmið og gildi án þess að dreifa kröftunum í skammvinn tækifæri.
  3. Viðbrögð við mótlæti (Resilience to Setbacks): Hraði og hugarfar við að ná sér aftur á strik, læra af mistökum og snúa áskorunum í vöxt.
  4. Sjálfsagi (Self-Discipline): Stjórnun á hvötum, forgangsröðun og uppbygging á öflugum venjum sem skila fyrirsjáanlegum árangri.
  5. Langtímasýn (Long-Term Vision): Skýr mynd af framtíðarmarkmiðum sem tengir daglegar aðgerðir og ákvarðanir við stærra samhengi.
  6. Þekkingarþorsti og vöxtur (Passion for Growth & Learning): Metnaður til að leita endurgjafar, stíga út fyrir þægindaramman og þróa stöðugt nýja færni.
  7. Hugrekki og meðvituð áhætta (Courage & Risk-Taking): Vilji til að taka djarfar en ígrundaðar ákvarðanir og taka á krefjandi málum af heiðarleika undir óvissu.
  8. Bjartsýni og von (Optimism & Hope): Trú á að erfiði skili árangri og geta til að halda uppi raunsæi og jákvæðri framtíðarsýn undir álagi.

Framtíðin krefst meira en tækni – hún krefst seiglu

Með því að efla SEIGLU (GRIT) innan þíns fyrirtækis tryggir þú að teymið þitt haldi skörpum fókus, klári krefjandi verkefni og standi af sér breytingar af öryggi.

360° GRIT-greiningin gefur ykkur skýran mælikvarða á raunstöðuna svo námskeiðið skili raunverulegum árangri í daglega rekstrinum – meiri framkvæmdastyrk, dýpri sjálfsþekkingu og meira úthaldi án kulnunar.

Ertu tilbúin(n) að efla samkeppnisforskot og seiglu þíns vinnustaðar?

Við sníðum námskeiðið nákvæmlega að þörfum, áskorunum og markmiðum ykkar.

[ Bókaðu ráðgjöf / Fáðu tilboð í þitt fyrirtæki ]

Innifalið í námskeiði

360° GRIT-greining fyrir alla þátttakendur

Greiningin byggir á bókinni ,,The Power of GRIT - The Science of Resilience in an Age of Constant Change" eftir Ingvar Jónsson, leiðbeinanda námskeiðsins.

Leiðbeinendur

Ingvar Jónsson
PCC-markþjálfi, alþjóðlegur fyrirlesari og rithöfundur

Ingvar Jónsson

Með næstum þriggja áratuga reynslu af kennslu og fyrirlestrahaldi — bæði hér heima og á alþjóðavettvangi — brennur Ingvar fyrir því að hjálpa fólki að leysa úr læðingi sína bestu útgáfu. Hann býr yfir öflugum faglega bakgrunni; er með MBA frá CBS, er alþjóðlegur markaðsfræðingur, NBI-Master Trainer og EQ-i Practitioner, auk þess að hafa hlotið alþjóðleg verðlaun og viðurkenningar fyrir framlag sitt til mannauðsmála og markþjálfunar.

Undanfarin 7 ár hefur Ingvar verið heila- og hjartað á bak við námsefni Profectus, þar sem hann hefur skrifað og þróað nánast allt efni fyrir bæði grunn- og framhaldsnám okkar. Hann er einnig afkastamikill rithöfundur og hefur gefið út röð beinskeyttra bóka um forystu, persónulegan vöxt og markþjálfun – sem margar hverjar skipa stóran sess í námsefninu hjá Profectus:

  • The Whole Brain Leader (2015)
  • Sigraðu sjálfan þig! (2018)
  • Hver ertu og hvað viltu? (2020)
  • Sigraðu sjálfan þig – aftur og aftur! (2022)
  • Leiðtoginn – valdeflandi forysta (2024)
  • 100 Powerful Questions – That Will Transform Your Life! (2024)
  • The Power of GRIT – The Science of Resilience in an Age of Constant Change (2025)
  • The Power of Emotional Currency - How Emotional Intelligence Shapes The Life You Build (2026)
Matti Osvald Stefánsson
PCC-markþjálfi

Matti Ósvald Stefánsson

Matti Ósvald Stefánsson er einn af reyndustu og fjölbreyttustu sérfræðingum landsins á sviði heilsueflingar, lífsstíls og markþjálfunar. Með meira en 25 ára reynslu úr þúsundum lífsstílsviðtala og áratuga reynslu af námskeiðhaldi hefur Matti einstakt lag á að hjálpa fólki að finna jafnvægi á milli líkama, sálar og huga.

Matti er með meistaragráðu í Theology (M.Th) þar sem megináherslan er á skilning á hinu mannlega, siðfræði og heimspeki. Hann hefur í rúman áratug kennt bæði í grunn- og framhaldsnámi í markþjálfun, sem gerir hann að einni helstu stoðinni í þjálfun nýrra markþjálfa á Íslandi.

Faglega vegferð sína hóf hann í Bandaríkjunum þar sem hann lærði við International Professional School of Bodywork (1988–1992) og útskrifaðist sem Holistic Health Practitioner og nuddfræðingur, ásamt því að bæta við sig sérhæfingu við Pacific College of Oriental Medicine. Hann er vottaður NLP Practitioner frá The NLP Institute of Los Angeles og er með alþjóðlega PCC-vottun sem fagþjálfi frá ICF (International Coaching Federation).