NBI-Practitioner námskeið

Þriggja daga NBI-Practitioner námskeiðUpplýsingabæklingur

Vilt þú vinna með NBI-huggreiningar til að efla og hvetja einstaklinga og teymi? NBI-Practitioner námskeiðið 22.-24. maí er fyrir alla sem vilja öðlast NBI-þjálfararéttindi og geta boðið upp á, unnið með og túlkað niðurstöður NBI-greininga fyrir sína starfsmenn, viðskiptavini, skjólstæðinga, leikmenn eða markþega?

Hinar átta víddir 360°-hugsunar

Fyrir hverja er námskeiðið?

NBI-Practitoner námskeiðið nýtist með áhrifaríkum hætti fyrir fjölbreyttan hóp fólks - til dæmis:

  • fyrir mannauðsstjóra
  • fyrir alla sem sjá um ráðningar
  • fyrir íþróttaþjálfara
  • fyrir einkaþjáfara
  • fyrir viktar- og lífsstílsráðgjafa
  • fyrir náms- og starfsráðgjafa
  • fyrir markþjálfa 
  • fyrir rekstrarrágjafa
  • fyrir skólastjóra og kennara
  • fyrir sáttamiðlara
  • fyrir hjónabandsráðgjafa
  • fyrir alla foreldra og fróðleiksþyrsta

Hvað er NBI?

Hvað er NBI-hugsnið

NBI stendur fyrir „Neethling Brain Instruments“ og eru persónuleika greiningar (sem hægt er að taka á 14 tungumálum - þ.á.m. á íslensku) mæla hvernig okkur er tamt að hugsa, hvernig við erum að eðlisfari (þegar enginn er nálægur og við erum ekki að leika eitthvað hlutverk til að falla inn í hópinn.

NBI-greiningar eru framkvæmdar þannig að einstaklingur fær lykilorð inn í NBI-kerfið þar sem hann svarar frá 60-124 spurningum (eftir því hvaða greining er tekin). Í framhaldi fær viðkomandi afhenta persónulega skýrslu (5-10 bls.) með upplýsingum um sig og stórri mynd sem sýnir hvernig hans hugsnið lítur út.

Byggt á ítarlegum rannsóknum vísindamanna

NBI-greiningarnar er vottaðar og ítarlega rannsakað mælitæki sem hafa verið þróað á grundvelli umfangsmikilla alþjóðlegra rannsókna vísindamanna á hugsun okkar og atferli síðan 1980. Kobus Neethling, undir handleiðslu Pauls Torrance, prófessors við Georgia- háskóla, hefur á grundvelli niðurstaðna þeirra rannsókna þróað fjölmargar mismunandi NBI-greiningar, bæði fyrir atvinnulífið, skólakerfið, einstaklinga og íþróttamenn.

NBI-hugmyndafræðin er griðarstaður umburðalyndisins

2 andstæð hugsnið einstaklinga

Hér er mynd af tveimur starfsmönnum (A og B) með afar ólík (andstæð) hugsnið. Þeir hafa ólíka sýn á heiminn, ólíkt gildismat og verulegar líkur eru á að samstarf þeirra einkennist af spennu og mis- skilningi - svo ólíkir eru þeir.

Þegar þeir læra að þekkja betur hugsnið hvors annars mun það auka skilning þeirra, umburðar- lyndi og möguleika á að hvor um sig fái svigrúm til nýta betur styrkleika sína í starfi á kostnað þess að pirrast yfir takmörkunum hins. Þetta er aðeins eitt lítið dæmi um hvernig hugsniðin geta nýst í öllu sem við gerum.

Hvað er NBI-hugsnið?

NBI-hugsnið gefa t.d. sterkar vísbendingar um hvernig:

  • við komum fram við aðra
  • við stundum viðskipti
  • við eigum samskipti
  • við leysum vandamál
  • við kjósum að forgangsraða
  • við myndum tengsl

Hugsnið okkar gefur vísbendingu um hvernig við hneigjumst til að eiga samskipti, stjórna, læra, kenna, leiða, leysa vandamál, taka ákvarðanir og mynda sambönd og margar fleiri hliðar lífsins. Kostirnir sem fylgja því að skilja þitt eigið hugsnið eru m.a. að þú myndar betri tengsl, ert virkari þátttakandi í teymisvinnu og tekur skynsamlegar og viðeigandi ákvarðanir.

Þó að „hughneigðir“ okkar geti stundum verið gagnlegar við ákveðnar aðstæður geta þær einnig dregið úr getu okkar til að starfa vel og markvisst. Til að við getum orðið skilvirkari – bæði persónulega og í atvinnulífinu – þurfum við að skilja hughneigðir okkar betur.

Eftir námskeiðið hefur þú:

  • Fengið vottun sem NBI®-leiðbeinandi og ert orðin(n) hluti af alþjóðlegu teymi NBI®-Practitioners.
  • Lært að skilja sérkenni allra fjórðunga 360°-hugsunar - hinn greinandi, hinn hefðbundna, hinn tilfinningamiðaða og hinn óhefðbundna.
  • Lært um víddirnar tvær innan hvers fjórðungs.
  • Lært að skilja hvernig mismunandi hugsnið sjá heiminn hver með sínum hætti.
  • Lært að „lesa hugsanir“, hvernig hægt er að finna og lesa í vísbendingar um hvernig fólk hugsar.
  • Lært um a.m.k. 10 mismunandi tegundir NBI-greininga og hvernig best er að nýta þær.
  • Lært að vinna með 2-3 greiningar með sama einstaklingnum til að fá sem skýrasta mynd af raunstöðunni. Til dæmis að bjóða stjórnanda að taka Adult-greiningu, Forystu-greiningu og Færni-greiningu til að kanna hvort færni hans styðji við ábyrgðarhlutverkið og hvort að hann sé mögulega „að leika leikrit“ í leiðtogahlutverkinu - sé þar af leiðandi „ekki hann sjálfur  / hún sjálf“.
  • Lært að lesa í vísbendingar í orðfæri fólks um hvaða hughneigðir eru ríkjandi hjá því.
  • Lært að nýta NBI-greiningar til að bæta eða koma í vig fyrir óheilbrigð samskipti t.d. í ástarsamböndum eða á milli samstarfsfélaga.
  • Aukið fagmennsku og trúverðugleika í starfi þínu sem NBI-Practitioner.
  • Fengið inn á „þinn bakenda“ í NBI-krfinu 10 NBI- greiningar (að verðmæti 75.000) til að nýta að námi loknu.
  • Opnað á möguleika til að auka tekju- streymi og „vöruúrval“ þitt verulega með NBI®-réttindum.
  • Fengið eigin NBI®-stjórnsíðu (bakenda) á vefnum fyrir þína viðskiptavini þar sem þú getur sent út og unnið með NBI-greiningar.
  • Fengið „NBI®-leiðbeinenda pakkann“ (að verðmæti 55.000,-) með PowerPoint kynningum (á íslensku og ensku), mynd- böndum, og kynningarefni til að auðvelda þér markaðssetningu á þjónustu þinni.

NBI-niðurstöður (skýrslan)

Allir sem taka NBI-greiningu fá afhenta skýrslu (6-10 bls. eftir tegund greiningar) með bæði almennum, ítarlegum og persónulegum upplýsingum sem byggja á svörun þeirra. Hér að neðan eru þær upplýsingar sem er að finna í niðurstöðum NBI-adult greiningar:

NBI-niðurstöður - Skýrsla

Bls. 1: Forsíða. Bls. 2: Mynd af Hugsniði í fjórðungum. Bls. 3: Hvernig túlkar þú niðurstöðurnar. Bls. 4: Almennar upplýsingar tengdar hverjum fjórðungi hugsniðs. Bls. 5: Upplýsingar afmarkaðar við viðkomandi út frá svörum hans. Bls. 6: Svör spurninga sem liggja til grundvallar hvers fjórðungs. Bls. 7: Átta-vídda niðurstöður og skipting á milli vídda. Bls. 8: Almennar upplýsingar beggja vídda í hverjum fjórðungi hugsniðs.

Kennari á námskeiðinu er NBI-Master Trainer

Kennarinn á námskeiðinu er Ingvar Jónsson er stjórnunar- og markaðsfræðingur, PCC-fagþjálfi, EQi-2.0- Practitioner og NBI-Master Trainer. Hann hefur unnið með NBI-greiningar síðustu 14 ár og skrifað um þá hugmyndafræði í sumum bókum sínum t.d. „Sigraðu sjálfan þig!“ (Mál og menning 2022) og í bókinni „Leiðtoginn - Valdeflandi forysta“ (Mál og menning 2024).

Ingvar hefur hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir störf sín og framlag til mannauðsmála. Áður hafa komið út eftir Ingvar verkfæri og ýmsar bækur til stefnumótunar hjá innlendum og erlendum forlögum.

Næsta námskeið verður á vorönn 2026

Við hjá Profectus höfum síðastliðin 12 ár verið eini umboðs- og þjónustuaðilinn fyrir NBI-greiningar í Skandinavíu. Við erum með einn af 12 Master Trainerum í heiminum og umboð til að þjálfa „NBI-leiðbeinendur“. Útskrifaður NBI-Practitoner hafa heimild til að vinna með NBI-greiningarnar, kaupa þær á heildsölu og selja til þriðja aðila. Þeir fá aðgang að bakenda NBI-kerfisins þar sem þeir geta úthlutað greiningum til einstaklinga og hópa, unnið með og túlkað niðurstöður, búið til Teymisskýrslur og hjálpað fólki að finna sér farveg í lífinu sem er í samhljómi við þeirra hugsnið.

Síðasta opna NBI-leiðbeinenda námskeið hér á landi var haldið 2019 en hefur síðan þá hafa NBI-leiðbeinenda námskeiðin eingöngu verið kennt sem hluti af framhaldsnámi Profectus í markþjálfun. En vegna mikillar eftirspurnar höfum við ákveðið að halda eitt opið þriggja daga námskeið frá 23.-25. næstkomandi.

23 mismunandi greiningar í boði ...

Hér að neðan er að finna lýsingu á nokkrum mismunandi greiningunum sem NBI-leiðbeinendur læra um og geta unnið með að námskeiði loknu. Þetta er aðeins hluti þeirra greininga sem í boði eru en alls eru til 23 mismunandi NBI-greiningar í heildina.

Almenn NBI-greining fyrir fullorðna

Þetta verkfæri mælir hughneigðir út frá mismunandi aðstæðum (í vinnu, á heimilinu, í samskiptum, við nám, úrvinnslu upplýsinga, í áskorandi aðstæðum, forgangsröðun o.fl. sem gefur góða mynd af því hvernig við erum að eðlisfari.

NBI-Forystugreining

Forystugreining veitir þér innsýn í forystustíl þinn, mál sem skipta þig miklu (en ef til vill ekki starfsmenn eða samstarfsmenn) og jafnvel þar sem rými gæti til vaxtar í starfi!

NBI-Færnigreining

Þetta verkfæri dregur fram færni einstaklings. Vera má að þú hafir aflað þér færni á tilteknu sviði sem er ekki dæmigerð fyrir hughneigð heilans þíns eða þú gætir verið með ríka hughneigð á einu sviði en hafir aldrei haft tækifæri til að þróa nauðsynlega færni.

NBI-Starfsgreining (notað við ráðningar)

NBI-starfssniðið er lýsandi en ekki dæmandi mat þar sem ekkert hugsnið er æðra öðru. NBI-starfssniðið dregur fram færnisstyrk sem æskilegt er að umsækjandi hafi í hverjum fjórðungi til að falla vel að tilteknu starfi

NBI-Samskiptagreining (fyrir vinnustaðinn)

Samskiptagreiningin veitir þér innsýn í hughneigðir starfsmanns með tilliti til samskipta og samskiptastíls viðkomandi. Innsýn í hughneigðir starfsmanna auka skilning og umburðarlyndi í samskiptum í stað gremju og aðfinnslusemi.

NBI-Matarvenjugreining (Fyrir einkaþjálfara og lífstílsráðgjafa)

NBI®-matarvenjusnið þitt veitir þér innsýn í megrunarstíl þinn, mál sem eru þér mikilvæg og jafnvel þar sem rými er fyrir umbætur! Greiningin er lýsandi, hlutlæg greining á hugarfari þínu gagnvart mat, hreyfingu og lífsstíl og eru niðurstöðurnar byggðar á þeim forsendum.

NBI-Fótboltagreining

Ertu einstaklingur á vellinum eða ertu hluti af liðinu? Býrðu til eyður og gegnumbrot í leiknum? Ertu sá sem heldur uppi aga á liði og reglu á vellinum? Verðurðu æstur á vellinum eða heldurðu ró þinni? NBI-fótboltagreiningin kortleggur hugsnið þitt sem leikmanns. Það ákvarðar hvernig þú spilar og upplifir leikinn.

NBI® Foreldragreining

Foreldragreiningin veitir þér innsýn í uppeldisstíl þinn; mál sem skipta þig miklu (en ef til vill ekki barn þitt eða maka!) og jafnvel þar sem rými gæti verið fyrir umbætur! Þróun bættra tengsla, öflugra framlag til fjölskyldunnar og að taka traustar og réttar ákvarðanir eru aðeins fáeinir kostir þess að skilja eigið hugsnið þegar kemur að uppeldi.

Verð: 228.000 kr.
Lengd: 3 dagar

Innifalið í námskeiði

  • Fullar veitingar á meðan náminu stendur
  • Vönduð og ítarleg námsgögn
  • Aðgangur að Tankinum (stafrænu kennslukerfi Profectus) á meðan náminu stendur og í 12 mánuði eftir að því lýkur
  • 10 NBI-greiningar sem nemendur geta nýtt að vild (að verðmæti 75.000 kr.)
  • NBI-stjórnsíða (bakenda) í NBI-kerfinu þar sem þú getur sent út og unnið með NBI-greiningar.
  • NBI-Practitioner startpakkinn (að verðmæti 55.000,-) með PowerPoint kynningum (á íslensku og ensku), kennslumyndböndum og tilbúnu kynningarefni til að auðvelda þér markaðssetningu á þér sem NBI-Practitioner.

Leiðbeinendur

Ingvar Jónsson
PCC-fagþjálfi og NBI-Master Trainer

Ingvar Jónsson

Ingvar hefur starfað við kennslu og fyrirlestrahald hér heima og erlendis síðustu 25 ár. Hann er Alþjóða markaðsfræðingur, MBA, NBI-master trainer og EQ-i Practitioner. Hann hefur hlotið nokkrar alþjóðlegar viðurkenningar s.s. sem einn af 101 áhrifamestu markþjálfum í heimi á World Coaching Congress í febrúar 2020, ACRE Excellence in Creativity Award (2021) Global HR Maveric (2022) og  one of 100 Most Iconic Coaching Leader (2023).

Ingvar hefur síðustu 8 ár skrifað og þróað nánast allt námsefni fyrir bæði Grunn- og Framhaldsnám Profectus. Hann er einnig rithöfundur og hefur síðustu ár skrifað nokkrar bækur sem eiga það sameiginlegt að fjalla að verulegu leyti um markþjáflun og nokkrar þeirra eru hluti af námsefni okkar. Þar má nefna: The Whole Brain Leader (2015) - Coaching - Bringing out the best (2016) - Sigraðu sjálfan þig! (2018) - Hver ertu og hvað viltu? (2020) og Sigraðu sjálfan þig - aftur og aftur! (2022) Brand Vision Cards (2021) LEIÐTOGINN – Valdeflandi forysta (2024).

Ingvar er frumkvöðull í eðli sínu, hefur í gegnum tíðina þróað fjölda viðskiptahugmynda með góðum árangri. Hann þekkir því á eigin skinni hvað það er að takast á við áskoranir, fara nýjar leiðir og verðmæti þess að fá svigrúm og tækifæri til að skoða hlutina frá öðru sjónarhorni og hvað þarf til að komast upp úr djúpum hjólförum vanans. Ingvar hefur einnig starfað sem skemmtikraftur og tónlistamaður í 30 ár sem endur-speglast í léttri og skemmtilegri framsetningu hans á því efni og þekkingu sem hann miðlar.


Næstu námskeið