- Nám og Námskeið
- Alþjóðlega vottað Markþjálfanám
- Þjálfun og námskeið fyrir fyrirtæki
- Greiningar og Upplýsingar
- Þetta erum við
Karfan er tóm
360° framhaldsnámið er Level 2 vottað af ICF (International Coaching Federation) og er sérstaklega byggt upp og hannað fyrir þá sem vilja öðlast enn dýpri skilning á hugmyndafræði markþjálfunar og sjálfum sér og vilja bæta verulega við færni sína í hlutverki markþjálfa.
Lögð er rík áhersla á að nemendur læri að tileinka sér í verki hið hlutlausa og styðjandi viðhorf markþjálfans og einnig þá skilyrðislausu fagmennsku sem bæði einstaklingar og fyrirtæki eru að kalla eftir í auknu mæli.
Yfirferð og efnistök í náminu miða að því að mæta kröfum metnaðarfullra nemenda og þeirra sem ætla sér alla leið og undirbúa sig fyrir alþjóðlega vottun frá ICF sem ACC eða PCC vottaðir markþjálfar.
Í grunnnámi í markþjálfun beinist athygli okkar að mestu leyti að því að miðla þekkingu til nemenda og þær æfingar sem nemendur fara í gegnum eru til þess fallnar að þeir upplifi á eigin skinni áhrifamátt þeirrar þekkingar. En þekkingin ein og sér kemur nemendum ekki langt því þeir verða að læra að beita henni til að ná og stuðla að árangri. Í framhaldsnáminu einbeitum við okkur bæði að því að dýpka þekkingu nemenda og að umbreyta henni í raunfærni. Að framhaldsnámi loknu á nemandinn að hafa öðlast færni í verki sem er áþreifanleg, framkvæmanleg, mælanleg og á hann að geta beitt henni af öryggi. Með öðrum orðum - við bætum taktfast við þekkingargrunn nemenda í framhaldsnáminu – en megináhersla okkar er ávallt á að efla til muna þá færni sem nýtist þeim best í hlutverki markþjálfans.
Í dag er aðgengi að upplýsingum meira en nokkru sinni fyrr — þær eru alstaðar og oft yfirþyrmandi. En sá sem býr bara yfir upplýsingum hefur enn ekki öðlast þekkingu. Það er ekki fyrr en viðkomandi er fær um að tengja saman upplýsingar með þeim hætti að öðlast nýja sýn eða aðra eða dýpri merkingu að hægt sé að tala um að viðkomandi hafi öðlast þekkingu.
Þekking ein og sér er hins vegar ekki til margra hluta gagnleg ef viðkomandi er ekki fær um að beita henni sér eða öðrum til framdráttar eða vaxtar. Þegar viðkomandi hefur lært að beita þekkingu sinni með áhrifaríkum og uppbyggjandi hætti er fyrst hægt að tala um að hann búi yfir raunverulegri færni.
Þeir sem hafa lokið grunnnámi vita að meginhlutverk markþjálfa er að stuðla að persónulegum vexti hjá sjálfum sér og öðrum, hvetja fólk og aðstoða við að uppgötva innra með sér styrk og vilja til að skuldbindast ásetningi sínum og yfirstíga þannig þær áskoranir oft sem standa í vegi. Það sama á við um nemendur í framhaldsnáminu því þeir læra á því ferðalagi af eigin raun að árangur er sjaldnast eins og spretthlaup, heldur langhlaup sem krefst stefnufestu, staðfestu og skuldbindingar á meðan á náminu stendur.
Í upphafi er nemendum einnig skipt upp í smærri teymi sem vinna að hluta til saman á milli lotna. Það veitir nemendum margvísleg tækifæri til æfinga og stuðnings á meðan náminu stendur. Í teyminu finna nemendur oft það mikilvæga aðhald sem þeir þurfa til að halda sér við efnið og efla þannig þrautseigju sína jafnt og þétt. Námið er bæði skemmtilegt og áskorandi ferðalag þar sem unnið er stöðugt að vexti og aukinni sjálfsþekkingu nemenda. Allir nemendur eru í náminu á sínum forsendum og uppskera eins og þeir sá.
Framhaldsnámið hjá okkur er tilvalin leið fyrir þá sem hafa vilja og þrautseigju til að skapa sér starfsvettvang sem markþjálfar - sjálfstætt starfandi eða innan fyrirtækja. Það er einnig spennandi leið fyrir þá sem vilja læra að búa til og halda fyrirlestra, vinnustofur eða námskeið sem byggja á hinni mögnuðu hugmyndafræði 360°markþjálfunar og bera efnistökin í náminu þess skýr merki. Í náminu fá nemendur í hendur og til afnota mikið magn af glærum, fjölbreyttum verkfærum, greiningartólum og öðru efni sem þeir geta nýtt að námi loknu - bæði til að greina þarfir einstaklinga og hópa - og einnig mæta þeim þörfum með t.d. vinnustofum, fyrirlestrum eða námskeiðum sem þeir geta hæglega útbúið með þeirri viðamiklu þekkingu og þeim efnivið sem þeir fá úr náminu.
Í lokaverkefninu - sem unnið er í teymum - er fléttað saman öllum þeim lykilþáttum sem teknir eru fyrir í náminu. Nemendur vinna lokaverkefnið i 3 - 4 manna teymi og snýr verkefnið að því að þarfagreina, undirbúa og sjá um framkvæmd á 4 klst. vinnustofu fyrir lítið fyrirtæki, deild innan fyrirtækis eða félagasamtök (10-15 manna hóp). Verkefnið er mjög lærdómsríkt ferli þar sem nemendur verða að vera komnir með það góðan skilning og þekkingu á efninu að þeir geti miðlað því áfram til annarra - með viðhorfi markþjálfans að leiðarljósi - að skapa vöxt og styðja við árangur.
Það eru vissulega takmörk fyrir því hversu mikið er hægt að kenna á 100 klukkustundum en með reynslumiklum kennurum, áhugasömum nemendum, faglegri umgjörð og brennandi ástríðu er það okkar leiðarljós að fara fram úr væntingum nemenda. Við höfum kennt ICF-vottað markþjálfanám í 10 ár nú í haust - frá haustönn 2016 - útskrifað meira en 600 nemendur og byggjum árangur okkar enn á þeirri einföldu og skýru stefnulýsingu sem við fórum af stað með í upphafi:
Námið samanstendur af mörgum og fjölbreyttum þáttum. Kennt er í þremur lotum - samtals átta daga. Nemendur fá þrjá persónulega mentortíma með kennara og sjö hóp-mentortíma. Einnig fá nemendur heimavinnu á milli lotna sem samanstendur af æfingar markjálfunum, lestri, verkefnavinnu, kennslumyndböndum, stöðumati, greiningarvinnu ásamt tveimur lokaverkefnum. Hið fyrra er einstaklingsverkefni eftir að nemendur hafa lokið við NBI-lotuna - til að öðlast NBI-þjálfararéttindi. Hið síðara - sem unnið er í teymum - er unnið á milli lotu tvö og lotu þrjú. Nemendur geta reiknað með að meðaltali 3 - 4 klst. í heimanám á viku á meðan náminu stendur.
Framhaldsnámið er umfram allt reynslumiðað nám þar sem nemendur eru hvattir til að innleiða lærdóm sinn jafnóðum á meðan náminu stendur. Reynslumiðað nám er hugmyndafræði sem tekin er úr kennslufræðum og felur í sér reynslumiðaðan lærdóm, stöðugt endurmat og ígrundun. Hún byggir alfarið á virkri þátttöku í raunverulegum aðstæðum, frekar en að framfylgja eingöngu leiðbeiningum kennara um hvað eigi að gera og hvernig eigi að gera það sem getur í sumum tilvikum verið í andstöðu við þá hugmyndafræði sem nemendur hafa tileinkað sér áður. Þar læra nemendur að nýta PAMF hringrásina.
PAMF-hringrásin er mjög gagnlegt verkfæri til að stuðla að stöðugum og markvissum lærdómi í náminu, sérstaklega þegar verið er að fara inn á og um ótroðnar slóðir og prófa nýja þekkingu nýtt verklag eða nýja hugsun þar sem reynsla og þekking er mögulega ekki til staðar – ennþá.
Kanadíski listamaðurinn Jim Ridge hefur teiknað tæplega 200 skýringamyndir sem við nýtum í náminu við að miðla fróðleik og dýpka skilning nemenda á efninu. Ríflega 60% nemenda læra best sjónrænt og með þá staðreynd að leiðarljósi leitumst við að hámaka lærdóm og áhugahvöt þeirra.
Viku áður en námið hefst fá nemendur tölvupóst með upplýsingum um hvernig þeir eiga að undirbúa sig áður en námið hefst. Þeir skrá sig inn á „Tankinn“ – stafræna kennslukerfið okkar þar sem bíður þeirra bæði ítarefni til yfirferðar og fræðslumyndbönd til skoðunar og undirbúnings fyrir fyrstu lotuna. Einnig taka nemendur EQi-2.0 tilfinningargreindar greiningu áður en þeir mæta.
Fyrsta lotan samanstendur af fjórum kennsludögum - frá fimmtudegi fram á sunnudag - þar sem kennt er frá 8:30 til 16:30 alla dagana.
Í fyrstu lotu námsins er megináhersla lögð á að dýpka sjálfsþekkingar- og tilfinningagreind nemenda. Í hlutverki markþjálfa eiga orð gríska heimspekingsins Sókratesar einstaklega vel við: „Sjálfsþekking er grunnur allrar annarrar þekkingar“. Það gerum við með því að bjóða öllum nemendum að taka EQi-2.0 tilfinningargreindar greiningu frá MHS sem greinir 5 lykilþætti og 15 undirþætti tilfinningagreindar. Nemendur fá afhenta 20 bls. skýrslu með sínum EQ-niðurstöðum sem þeir geta auðveldlega nýtt til að efla með markvissum hætti tilfinningagreind sína jafnt og þétt í náminu. Tilfinningagreindin er öflugasta verkfæri markþjálfans.
Í fyrstu lotunni byggjum við traustan grunn með því að dýpka enn frekar skilning nemenda á þeim 8 hæfnisþáttum og 37 færniþáttum sem eru undirstaða PCC-vottunar. Mikið er um verklegar æfingar þar sem nemendum gefst tækifæri til að læra að innleiða nýja og áhrifaríkari nálgun í hlutverki markþjálfans. Nemendum er einnig kennt hvernig þeir geta nýtt betur hið órjúfanlega jafnvægi á milli stuðnings og áskorunar markþjálfans til að stuðla að hámarksárangri sinna markþega.
Á milli lotna vinna 3 - 4 nemendur saman í teymum þar sem þeir nýta aðferða- og hugmyndafræði markþjálfunar til að styðja hver við annan og stuðla að auknum vexti og lærdóms innan teymisins. Eins og tiltekið var hér að ofan geta nemendur reiknað með að meðaltali 3 - 4 klukkustundum í heimavinnu á viku á milli staðarlotna sem og æfingarmarkþjálfunum, lestri, verkefnavinnu, kennslumyndböndum, stöðumati o.fl. sem undirbýr þá fyrir komandi lotu.
Önnur lotan samanstendur af þremur kennsludögum - frá föstudegi fram á sunnudag - þar sem kennt er frá 8:30 til 16:30 alla dagana.
Fyrstu tvo dagana er farið djúpt í NBI-fræðin og hvernig þau nýtast markþjálfanum í að dýpka skilning sinn á því að allir eru einstakir að eðlisfari. Þannig læra nemendur hvernig þeir geta betur aðlagað nálgun sína í hlutverki markþjálfa að hverjum og einum. Ingvar Jónsson „NBI Master Trainer“ og framkvæmdastjóri Profectus hefur um árabil átt í nánu samstarfi við Kobus Neethling – stofnanda og eiganda NBI-greiningartækisins – og þróað með honum sérstakar NBI-markþjálfagreiningar.
NBI-greining eru vottaðar og ítarlega rannsakað mælitæki sem hefur verið þróað síðan 1980 og í dag eru í boði fjölmargar mismunandi NBI-greiningar bæði fyrir atvinnulífið, náms- og hjónabandsráðgjafa, ráðningafyrirtæki, skólakerfið, einstaklinga og íþróttamenn.
Hér er mynd af tveimur einstaklingum (A og B) með afar ólíkar niðurstöður úr NBI-greiningu (andstæð hugsnið). Þeir hafa ólíka sýn á heiminn, ólíkt gildismat og verulegar líkur eru á að samskipti þeirra einkennist oft af spennu og misskilningi - svo ólíkt er hugarfar þeirra.
En þegar þeir læra að þekkja betur hugsnið hvors annars eykur það skilning þeirra, umburðarlyndi og möguleika á að hvor um sig fái svigrúm til að „vera þeir sjálfir“ án þess að ólík heimssýn þeirra leiði til pirrings eða misskilnings.
Þetta er aðeins eitt lítið dæmi um hvernig skilningur okkar á NBI-hugmyndafræðunum geta nýst í samskiptum. Þessi fræði eru afar verðmæt í hlutverki markþjálfans þar sem hann lærir fljótt að lesa í hinar óyrtu vísbendingar og bæði innsæi hans verður sterkara og hlustun hans dýpri.
Í framhaldsnáminu öðlast nemendur NBI-þjálfararéttindi og geta að námi loknu boðið upp á og selt tæplega 20 mismunandi NBI-greiningar og túlkað niðurstöður þeirra fyrir sína viðskiptavini og markþega.
Eftir lotuna þegar nemendur hafa skilað inn og staðist lokaverkefni fá þeir fullgild NBI-þjálfara réttindi og heimild til að selja, vinna með og túlka NBI-greiningar. Þeir fá persónulegan aðgang að NBI-kerfinu og sitt heimasvæði þar sem þeir geta úthlutað og haft umsjón með greiningum sinna markþega og annarra viðskiptavina.
Þriðji dagur lotunnar er helgaður því að undirbúa nemendur og teymin með ítarlegum og fjölbreyttum hætti fyrir lokaverkefnið sem lýst er hér að neðan.
Lokaverkefni er unnið í teymum þar sem fléttað er saman þeim lykilþáttum sem búið er að fara yfir í náminu í þeim tilgangi að vera með vinnustofu fyrir lítið fyrirtæki, deild innan fyrirtækis eða félagasamtök. Um raunverkefni er að ræða þar sem hvert teymi greinir þarfir hópsins, leggur fram tillögu til samþykktar, skipuleggur, undirbýr og sér um framkvæmd á 4 klst. vinnustofu með 10 - 15 þátttakendum. Allt sem snýr að lokaverkefninu tengist hæfnisþáttum markþjálfunar með beinum hætti. Eins og Sir John Whitmore – einn af frumkvöðlum markþjálfunar sagði:
„Markþjálfun er að opna á möguleika mannsins til að hámarka eigin getu. Hún gengur út á að hjálpa fólki að læra í stað þess að kenna því“.
Þar liggur lykillinn að góðri vinnustofu – að nýta hugmyndafræði markþjálfunar og hópmarkþjálfun til að hjálpa þátttakendum að læra. Í verkefninu eiga nemendur að nýta efnistökin í náminu, NBI-fræðin og hugmyndafræði markþjálfunar til að efla þekkingu og færni þátttakenda vinnustofunnar í þeim tilgangi að til dæmis:
Í upphafi funda nemendur með forsvarsmanni hópsins og framkvæma þarfagreiningu sem leiðir í ljós hvernig nemendur geta nýtt þekkingu sína og það efni sem þeir hafa fengið til að mæta þörfum hópsins – hver væri besta útkoma vinnustofunnar.
Eftir vinnustofuna fá nemendur endurgjöf frá hópnum sem hjálpar þeim að læra hvernig þeir geta notast við hugmyndafræði markþjálfunar til að stuðla að stöðugum endurbótum og gera gott enn betra. Í síðustu lotunni kynna teymin verkefni sín og niðurstöður fyrir samnemendum og kennurum ásamt því að skila inn skýrslu sem inniheldur m.a. framvindu, lykilniðurstöður ásamt tillögum til endurbóta.
Þriðja lotan samanstendur af tveimur kennsludögum - frá laugardegi fram á sunnudag - þar sem kennt er frá 8:30 til 16:30 báða dagana.
Fyrri dagur þriðju lotu samanstendur af tveimur ólíkum þáttum sem skarast þó talsvert. Fyrir hádegi eru kynningar nemenda á lokaverkefnum sínum sem er fylgt ertir með umræðum um þann lærdóm sem nemendur tóku með sér úr verkefnunum. Að því loknu læra nemendur hvernig á að halda umbótafund og hvernig hægt er að nýta hópmarkþjálfun til að stýra honum með markvissum hætti. Í framhaldi af því stýra teymin umbótafundi með öðru teymi.
Á lokadegi námsins verður byrjað í allsherjar yfirferð og upprifjun. Að henni lokinni vinna nemendur verkefni undir leiðsögn þar sem þeir skerpa á framtíðarsýn sinni og skoða þá möguleika og tækifæri sem bíða þeirra að námi loknu – hvernig þeir geta nýtt það sem þeir hafa lært til að taka ábyrgð á því sem þeir vilja að framtíðin beri í skauti sér.
Síðustu lotuna gista nemendur á Hótel Kríunesi þar sem þeim gefst tækifæri á að fagna saman þeim árangri og vexti sem þeir hafa náð saman í náminu.
Námið undirbýr nemendur markvisst fyrir bæði fyrsta og annað stig ICF-vottunar.
Þeir fræðsluaðilar sem hafa uppfyllt ströng skilyrði ICF um nám sem er vottað á stigi 2 (Level 2), hafa þar með einnig staðist kröfur ICF til að meta og votta færni nemenda sinna við námslok. Þegar nemandi hefur staðist það færnimat hefur hann einnig uppfyllt allar kröfur ICF sem þarf til að sækja um bæði ACC- og PCC-vottun - allt eftir því hversu mikla reynslu nemandi hefur öðlast á þeim tímapunkti (fjöldi klst. sem hann hefur markþjálfað).
Nemendur sem koma í námið eru flestir að undirbúa sig fyrir fyrsta vottunarstig (ACC-vottun). En nemendur þurfa ekki að bæta við sig frekara námi eftir að hafa lokið framhaldsnáminu til að mega sækja um næsta vottunarstig (PCC- vottun) heldur eingöngu ljúka þeim 500 markþjálfatímum sem þarf til að mega sækja um það vottunarstig þegar þar að kemur.
Eftirspurn eftir ICF-vottuðum markþjálfum hefur verið að aukast bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Fyrirtæki eru að bjóða starfsfólki sínu upp á markþjálfun í mun meira mæli en áður og þar vegur ICF-vottun þyngst. ICF-vottun markþjálfa er í raun eina gæðavottunin sem hefur öðlast almenna viðurkenningu hér á landi og hana er eingöngu hægt að öðlast erfir að hafa lokið ICF-vottuðu námi.
Rannsóknir hafa einnig varpað ljósi á að þeir sem kaupa þjónustu markþjálfa vilja gjarna meiri áskoranir og festu sem endurspeglast í uppbyggingu námsins.
Því hafa markþjálfanámin okkar bæði staðist kröfur og væntingar markaðarins og fyrrverandi nemenda síðustu 10 ár.
Í könnun sem við gerðum fyrir 3 árum sögðust 99,2% nemenda að þeir myndu mæla með markþjálfanámi okkar við aðra.
Hér að neðan er að finna allar þær almennu kröfur og yfirlýsingar sem okkur - sem ICF-vottuðum fræðsluaðila ber að virða og fylgja:
NBI-þjálfararéttindi og eigið svæði í NBI-kerfinu að sýsla með og senda út NBI-greiningar.
EQi-2.0 tilfinningagreindargreining frá MHS sem greinir 15 undirþætti tilfinningagreindar.
12 mánaða aðgangur að Tankinum, kennslukerfi Profectus þar sem nemendur hafa ótakmarkaðan aðgang að kennslumyndböndum, verkefnum og öðrum fóðleik sem tekið er fyrir í framhaldsnáminu,og einnig úr grunnnáminu þeim til upprifjunar.
Tíu mentormarkþjálfunar tímar - þar af þrír einkatímar) með PCC-vottuðum markþjálfa.
Fjórar persónulegar og skriflegar endurgjafir á eigin framistöðu í markþjálfun.
Vönduð kennslumappa með öllu ítarefni og verkefnum sem tekin eru fyrir í náminu.
Bókin: Hver ertu og hvað viltu?
Bókin: Leiðtoginn - Valdeflandi forysta!
Gisting á Hótel Kríunesi (1 nótt síðustu lotuna)
Ljúffengar veitingar á meðan námskeiðinu stendur, ávaxtabakki fyrir hádegi, súpu og heitan mat í hádeginu og standandi kaffi, te og meðlæti og alla kennsludaga.
Ingvar hefur starfað við kennslu og fyrirlestrahald hér heima og erlendis síðustu 28 ár. Hann er með MBA frá CBS, er Alþjóða markaðsfræðingur, NBI-Master Trainer og EQ-i Practitioner. Hann hefur hlotið nokkrar alþjóðlegar viðurkenningar og verðlaun fyrir framlag sitt til mannauðsmála og markþjálfunar.
Ingvar hefur síðustu 7 ár skrifað og þróað nánast allt námsefni fyrir bæði Grunn- og Framhaldsnám Profectus. Hann er einnig rithöfundur og hefur síðustu ár skrifað nokkrar bækur sem eiga það sameiginlegt að fjalla að verulegu leyti um markþjáflun og nokkrar þeirra eru hluti af námsefni okkar. Þar má nefna: The Whole Brain Leader (2015) - Sigraðu sjálfan þig! (2018) - Hver ertu og hvað viltu? (2020) og Sigraðu sjálfan þig - aftur og aftur! (2022) og Leiðtoginn - valdeflandi forysta (2024) og nú síðast bókina 100 Powerful Questions - That Will Transform Your Life! (2024).
Matti Ósvald Stefánsson M.Th.- NLP Pr. er heilsuráðgjafi og PCC-markþjálfi. Hann hefur haldið mikinn fjölda fyrirlestra og námskeiða á undanförnum áratugum, þar sem hann miðlar reynslu sinni af þúsundum lífsstílsviðtala síðustu 25 ára. Matti hefur kennt í grunn- og framhaldsnámi í markþjálfun í rúman áratug og því einn af reyndustu kennurum í markþjálfun sem við eigum hér á landi.
Hann stundaði nám í International Professional School of Bodywork í USA frá 1988-1992 sem Massage Therapist og Holistic Health Practitioner með aukanámi frá Pacific School of Oriental Medicine. Hann hefur vottun frá The NLP Institute of Los Angeles og sem fagþjálfi frá ICF.
Rakel er vottaður Professional Certified Coach (PCC) og einnig NBI- practitioner & 360°Coach. Fáir hafa tekið markþjálfun eins föstum tökum og Rakel þar sem ekki liðu nema tvö ár frá því að hún hóf nám þar til hún var komin með PCC-gráðuna í hendur. Hún hefur þannig sýnt í verki að það er ekkert sem stoppar fólk nema það sjálft - og það sem er sjaldnar rætt - það er ekkert sem kemur þér eins langt og innri hvati, áræðni og staðfesta.
Rakel er markþjálfi sem brennur fyrir því að styðja fólk í að vaxa, þróa sig og hámarka hæfileika sína - og sem kennari finna nemendur vel fyrir þeirri ástríðu. Hún nálgast hvert samtal af djúpri einlægni og trú á að allir hafi innan síns brjósts kraftinn til að ná sínum markmiðum, hvort sem það er í starfi, námi eða einkalífi. Með hlýju, sterku innsæi og faglegri nálgun leiðir hún markþega sína í átt að aukinni sjálfsvitund, skýrleika og árangri.
Lella er PCC vottaður markþjálfi, mannauðssérfræðingur, viðskiptafræðingur og markaðskona með fjölbreytta og víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Hún er sterkur leiðtogi og nýtir breytingaafl markþjálfunar til að styðja fólk og fyrirtæki til vaxtar. Lella hefur ríka reynslu af verkefnastjórnun, markaðsmálum, samskiptum og eflingu mannauðs.
Lella er með PCC vottun frá International Coaching Federation, meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá sama skóla. Auk þess er hún með BA gráðu í sálfræði.