Endaspretturinn - Þar sem þú lærir PCC-færni

Þessi þriðji og síðasti hluti markþjálfanáms okkar er „Endaspretturinn - frá ACC upp í PCC-færni“. Þetta er hagkvæmasta og ítarlegasta námið fyrir þá sem vilja verða ACC-vottaðir—og þegar þar að kemur—PCC-vottaðir markþjálfar án þess að þurfa að bæta við sig frekara námi.

Við tókum þá ákvörðun í sumar að hætta að bjóða upp á bæði langt og dýrt framhaldanám með öllu inniföldu. Í stað þess ákváðum við að skipta því í tvennt og koma þannig betur til móts við óskir og þarfir okkar nemenda. Þessi breyting gerir það að verkum að nemendur hafa út fjölbreyttari leiðum að velja og möguleika á að ljúka heildarnámi í markþjálfun sem spannar þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir markþjálfa að læra, þroskast og ná góðri færni í hlutverki sínu sem markþjálfi. Þar að auki eru þessir þrír hlutar 300.000 kr. ódýrari en áður þegar við buðum eingöngu upp á grunnnám og framhaldsnám.

Kennslufyrirkomulag:

  • Kennslan fer fram yfir þriggja mánaða tímabil, frá byrjun september til byrjun desember.
  • Kennt er fjögur kvöld á þessu tímabili frá kl. 17-21 og fer kennslan fram á ZOOM.
  • Hópurinn fær þriggja klukkustunda hóp-mentortím þegar líður að því að senda inn prófupptöku þar sem farið er enn betur yfir þau atriði sem niðurstaða gagnagreiningar allra endurgjafa frá nemendum leiðir í ljós að mikilvægast sé að skoða enn frekar.
  • Á þessu þriggja mánaða tímabili senda allir nemendur inn þrjár hljóðupptökur á markþjálfasamtölum til yfirferðar.
  • Þær eru metnar af kennara út frá PCC-færniviðmiðum ICF.
  • Nemendur fá í framhaldinu skriflega endurgjöf á sína frammistöðu frá - hvar styrkleikar hans liggja og hvar er þörf á frekari framþróun. 
  • Hver nemandi fær einnig 3 persónulega mentortíma með kennara þar sem unnið er markvisst með þá þætti sem þarfnast mestrar athygli hverju sinni.

Mikilvægt er að það komi fram að þeir nemendur sem klára þessa þrjá hluta þurfa ekki að senda inn hljóðupptökur á ensku þegar þeir sækja um ACC- eða PCC-vottun þegar þar að kemur því standist þeir PCC-færnimatið á meðan náminu stendur gerir ICF ekki kröfu um frekari sannanir á færni nemenda í vottunarferlinu.

Þegar nemandi hefur markþjálfað í 100 klst. getur hann sótt um ACC-vottun og þegar að því kemur að hann hafi náð 500 klst. getur hann sótt um PCC-vottun án þess að bæta við sig frekara námi þar sem hann hefur sýnt fram á að hann búi yfir PCC-færni þegar hann lauk náminu hjá okkur.

Útskýringar á kröfum ICF til vottaðra fræðsluaðila

Af gefnu tilefni viljum við útskýra þær kröfur sem fræðsluaðilum ber að fylgja í einu og öllu til að öðlast og viðhalda vottun frá ICF (International Coaching Federation). Því miður eru upplýsingar um ICF-vottuð markþjálfanám hjá fræðsluaðilum mismunandi og í einhverjum tilfellum misvísandi. Því teljum við mikilvægt fyrir nemendur að skilja þau grunnviðmið sem viðurkenndir þjálfunaraðilar (skólar) verða að uppfylla til að öðlast heimild til að starfa undir merkjum ICF.

LEVEL 1 vottun

Þeir skólar sem hafa LEVEL 1 vottun frá ICF hafa skuldbundið sig til að uppfylla allar eftirfarandi kröfur sem ICF hefur sett fram til að samræma og tryggja að sú menntun sem ICF-viðurkenndir skólar verða að standast. Þannig eru tryggðar samræmdar gæðakröfur á náminu sem á einnig að tryggja hag nemenda.

Til að nemandi geti sótt um ACC-vottun hjá ICF verður hann að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Lokið við og staðist að lágmarki 60 klst. ICF-vottað nám.
  2. Markþjálfað að lágmarki 100 klst. og fengið greiðslu fyrir 75% af þeim. Engar reglur eru til grundvallar varðandi greiðsluform eða lágmarksupphæð fyrir þá þjónustu sem hann veitir.
  3. Fengið 10 mentortíma frá ICF-vottuðum markþjálfa sem hefur til þess tilskilin réttindi.
  4. Þrír af þessum tímum verða að vera persónulegir (þ.e. nemandi er einn með mentor)
  5. Sjö af þeim mega vera hóp-mentor tímar. Þessir mentortímar verða að spanna að lágmarki yfir þriggja mánaða tímabil.
  6. Kennurum á námskeiðinu ber að vakta (hlusta á frá upphafi til enda) fimm samtöl hjá hverjum nemenda.
  7. Öllum nemendum ber að fá skriflega endurgjöf fyrir að lágmarki þrjú af þeim samtölum þar sem þau eru metin með tilliti til hæfnisþátta ICF.
    (Vaktað samtal getur einnig verið innsend upptaka á samtali frá nemanda sem kennari hlustar á og sendir nemanda skriflega endurgjöf í framhaldinu).

Hafi nemandi uppfyllt öll þessi skilyrði getur hann sótt um að hefja ACC-vottunarferlið.

Til að nemandi geti sótt um PCC-vottun verður hann að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Lokið við og staðist að lágmarki 125 klst. ICF-vottað nám. Þar er átt við samanlagðan tímafjölda þeirra námskeiðshluta á leið þeirra að ACC eða PCC-vottun.
  2. Markþjálfað að lágmarki 500 klst. og fengið einhverskonar greiðslu fyrir 75% af þeim tímum. Engar reglur eru til grundvallar varðandi greiðsluform eða lágmarksupphæð.
  3. Fengið 10 mentortíma frá ICF-vottuðum markþjálfa sem hefur til þess tilskilin réttindi.
  4. Þrír af þessum tímum verða að vera persónulegir (þ.e. nemandi er einn með mentor)
  5. Sjö af þeim tímum mega vera hóp-mentor tímar þar sem að hámarki eru 10 nemendur á hvern kennara.
  6. Kennurum á námskeiðinu ber að vakta (hlusta á frá upphafi til enda) sex samtöl frá hverjum nemenda.
  7. Öllum nemendum ber einnig að fá skriflega endurgjöf á frammistöðu sína fyrir að lágmarki fjögur af þeim samtölum þar sem þau eru metin með tilliti til hæfnisþátta ICF.
    (Vaktað samtal getur einnig verið innsend hljóð eða myndbandsupptaka af markþjálfasamtali frá nemanda sem kennari hlustar á og sendir nemanda skriflega endurgjöf).

Hafi nemandi uppfyllt öll þessi skilyrði getur hann hafið ACC- eða PCC-vottunarferlið, allt eftir því hversu marga tíma hann hefur markþjálfað. Það þarf 100 klst fyrir ACC-vottun og 500 klst fyrir PCC-vottun.

LEVEL 2-vottað markþálfanám Profectus samanstendur af þremur hlutum

    • Fyrsti hlutinn „Grunnnám í markþjálfun - Gerðu gott betra!“
    • Annar hlutinn „Upp og áfram! - Eftirfylgni, stuðningur og stefnumótun" 
    • Þriðji hlutinn  „Endaspretturinn - frá ACC upp í PCC-færni“  

Profectus er með LEVEL-2 vottun á markþjálfanáminu frá ICF sem þýðir að við höfum skuldbundið okkur til að uppfylla öll þau skilyrði sem ICF gerir kröfu um.

Nú geta nemendur sem hafa lokið grunnnámi (hjá okkur eða öðrum skólum sem bjóða ICF-vottað grunnnám bætt við sig námskeiðinu „Upp og áfram!“ sem er sérstaklega sniðið að þeim sem vilja góðan stuðning og eftirfylgni í 11 mánuði að grunnnámi loknu. Það er einmitt sá tími sem það hefur að meðaltali tekið nemendur að safna þeim 100 markþjálfunartímum sem þeir þurfa til að mega sækja um ACC-vottun.

Þeir sem velja að fara alla leið í ACC-og PCC-vottun (þegar þeir hafa náð tilskildum tímafjölda) geta nú bætt við sig þriðja hlutanum „Endaspretturinn - leiðin að PCC-færni“ þar sem áhersla er lögð á að nemendur nái að tileinka sér þá færni sem þarf til að standast PCC-færnikröfur ICF.

Mikilvægt er að það komi fram að þeir nemendur sem klára þessa þrjá hluta þurfa ekki að senda inn hljóðupptökur á ensku þegar þeir sækja um ACC- eða PCC-vottun þegar þar að kemur því standist þeir PCC-færnimatið á meðan náminu stendur gerir ICF ekki kröfu um frekari sannanir á færni nemenda í vottunarferlinu.

Þegar nemandi hefur markþjálfað í 100 klst. getur hann sótt um ACC-vottun og þegar að því kemur að hann hafi náð 500 klst. getur hann sótt um PCC-vottun án þess að bæta við sig frekara námi þar sem hann hefur að námi loknu (þessum þremur hlutum) sýnt fram á að hann búi yfir PCC-færni þegar hann lauk námi hjá okkur.

Þessi breyting gerir það að verkum að nemendur hafa fjölbreyttari leiðir og möguleika á að ljúka heildarnámi í markþjálfun sem spannar þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir markþjálfa að læra, þroskast og öðlast færni í sínu hlutverki.

Þar að auki eru þessir þrír hlutar 300.000 kr. ódýrari en áður þegar eingöngu var um grunn- og framhaldsnám að ræða.

Samantekt og verð hluta í LEVEL 2-vottuðu námi Profectus

Hér er tafla þar sem þú sérð hvernig við uppfyllum allar kröfur ICF fyrir LEVEL 2-vottað nám.

Opnað verður fyrir skráningar þegar endanlegar dagsetningar liggja fyrir

Verð: 299.000 kr
Lengd: 26 klst. (3 mánuðir)