Orku- og Tímastjórnun - Fyrir þá sem þrá jafnvægi og hugarró!

Orku- og Tímastjórnun - Fyrir þá sem þrá jafnvægi og hugarró!

Það er hægt að ná og halda yfirsýn og hafa líka tíma fyrir lífið sjálft!

Viltu öðlast meiri hugarró og segja streitunni stríð á hendur? Þá er þetta námskeið fyrir þig.

Í nútímasamfélagi er hraðinn orðinn það mikill að oft er erfitt er að ná og halda yfirsýn yfir öll þau verk sem fyrir liggja. GTD nútímastjórnunarkerfið er heildstætt kerfi sem auðvelt er að tileinka sér. Þetta námskeið er sniðið að þörfum þeirra sem upplifa að dagurinn dugi ekki til dagsins verka. Áhersla er lögð á að horfast í augu við staðreyndir og að hver og einn finni sína eigin leið til betra skipulags. 

Orku- og Tímastjórnun - Fyrir þá sem þrá jafnvægi og hugarró

Á námskeiðinu lærir þú:

  • Að flokka og skilgreina öll þau verkefni sem kalla á athygli þína.

  • Að vinna með mismunandi verklista í stað úreltra og tilgangslítilla „To-do“-lista.

  • Að nota MS OneNote til að ná og halda yfirsýn yfir allt sem fyrir liggur.

  • Að skipuleggja og flokka tölvupóstinn þannig að þú farir frá Inboxinu tómu í lok hvers vinnudags.

  • Hvernig hæð athyglinnar getur hjálpað þér við forgangsröðun verkefna.

Verð: 39.800
Lengd: 4 klst.

Leiðbeinendur

Ingvar Jónsson Profectus

  • Ingvar Jónsson – Alþjóða markaðsfræðingur, MBA, PCC og NBI-Master trainer
  • Höfundur bókanna „The Whole Brain Leader“ (Profectus 2015 og SAGE 2018), „Coaching – Bringing out the best“ (Mál og Menning 2016) „Sigraðu sjálfan þig!“ (2018) „Hver ertu og hvað viltu“ (Mál og Menning 2020) og „Brand Vision Cards“ (BIS Publishing 2020)
  • Var valinn einn af 101 áhrifamestu markþjálfum í heimi á World Coaching Congress í febrúar 2020.