360° frammistöðumat

Þegar gera á gott betur

Fyrirtæki verða sífellt meðvitaðri um þá staðreynd að mannauðurinn er ein helsta auðlind fyrirtækja í dag. Árangur fyrirtækja byggist ekki síst á hæfni starfsfólks. Það þýðir að því hæfara starfsfólk sem fyrirtækið nær að ráða til sín því meiri líkur eru á að það nái samkeppnislegu forskoti. 

Frammistaða starfsmanna er einn mikilvægasti þátturinn í fyrirtækjum, enda er hún það sem hefur hvað mest áhrif á árangur fyrirtækis. Í frammistöðumati eru borin kennsl á styrk- og veikleika starfsmanns og er það því góð leið til að fá heildarmynd af frammistöðu hans.

Í 360° mati er upplýsingum um frammistöðu safnað úr ýmsum áttum, eftir því hverja starfsmaður á í mestum samskiptum við, t.d. hjá næsta stjórnanda, undirmönnum, samstarfsfólki og jafnvel viðskiptavinum. 

360° mat frá Profectus hjálpar þér að fá skýra mynd af æskilegri forgangsröðun í starfsmannaþróun. Æskilegt er að fylgja matinu eftir með stjórnendamarkþjálfun þar sem niðurstöður matsins eru nýttar til að hjálpa starfsmanninum til að gera gott betur.

Matið og spurningarnar sem lagðar eru fyrir eru klæðiskerasniðnar að aðstæðum hverju sinni þannig að tilgangurinn helgi alltaf meðalið.

360° mat Profectus