Grunnnám í markþjálfun - Gerðu gott betra!

Alþjóðleg markþjálfun sem nær dýpra

Við kennum þér ekki bara fræðin — við bjóðum þér í vegferð sem hefur mótað yfir 600 markþjálfa í þremur heimsálfum.

Hjá Profectus lærir þú aðferðafræði sem hefur sannað gildi sitt um allan heim. Við höfum miðlað þekkingu okkar til nemenda í löndum allt frá Írlandi til Suður-Afríku.

Á meðan aðrir fylgja námsskrám, þá höfum við þróað þær. Við erum höfundar 5 bóka um hugmyndafræði markþjálfunar og höfum hannað námsferli sem bæði íslenskir og alþjóðlegir markþjálfar byggja starf sitt á í dag.

Sérstaða okkar

Markþjálfanám Profectus: vegferð sem skilar þér raunverulegum árangri

  • Myndræn nálgun: Við trúum því að flókin hugmyndafræði eigi að vera auðskiljanleg og aðgengileg. Kennsla okkar byggir að langmestu leyti á myndrænni framsetningu sem auðveldar þér að meðtaka, muna og beita markþjálfun í raunverulegum aðstæðum.

  • Einstakt kennslukerfi: Þú ert aldrei ein(n/tt) á vegferðinni. Okkar sérhannaða kennslukerfi tryggir frammúrskarandi stuðning og eftirfylgni í gegnum allt námið, svo þú fyllist sjálfstrausti í hverju skrefi.

  • Leiðandi námsefni á heimsvísu: Þú lærir eftir námsefni sem hefur ferðast víða um heiminn. Við höfum gefið út 5 bækur sem byggja á hugmyndafræði markþjálfunar sem dýpka verulega skilning þinn og gefa þér forskot sem þú finnur ekki annarstaðar.

3 Stólpar

Fagmennska sem fangar alla manneskjuna: hið huglæga og hið hlutlæga—hver hún er og hvað hún gerir

Við vitum að markþjálfun er ekki bara tækni, heldur mannleg samskipti. Þess vegna hönnuðum við ferðalag sem hentar jafnt krefjandi stjórnendum og þeim sem vilja dýpka sjálfsþekkingu sína og hjálpa öðrum. Við bjóðum upp á hlýjuna og nálægðina sem einkennir bestu markþjálfana, en jarðtengjum hana í kerfi og námsefni sem standast ströngustu alþjóðlegu kröfur ICF.

Bókaðu kynningu

Hvenær, hvar og hvernig? (Dagsetningar, tími og verð)

Haustönn 2026 - 25. september - 22. nóvember.
  • Lota 1: 
    Föstudaginn 25. september frá 9:00-16:00
    Laugardaginn 26. september frá 9:00-16:00
    Sunnudaginn 27. september frá 9:00-16:00
  • Lota 2:
    Föstudaginn 23. október frá 9:00-16:00
    Laugardaginn 24. október frá 9:00-16:00
    Lota 3:
    Föstudaginn 20. nóvember frá 9:00-16:00
    Laugardaginn 21. nóvember frá 9:00-16:00
    Sunnudaginn 22. nóvember frá 9:00-16:00
  • Staður: Hótel Kríunes við Elliðavatn

Verð: 598.000 kr.

  • Staðgreiðsluafsláttur: 40.000 kr. ef greitt er við skráningu.

  • Sveigjanleiki: Boðið er upp á vaxtalausa greiðsludreifingu í allt að 6 mánuði og raðgreiðslur til 36 mánaða.

  • Stéttarfélög: Flest stéttarfélög niðurgreiða námið verulega – athugaðu þinn rétt.

  • 10% Staðfestingargjald: 59.800 kr. og tryggir sæti þitt í hópnum.

Bókaðu kynningu

Af hverju Profectus? 

Meira en bara nám – alþjóðleg vegferð með sál.

Það er algjör samsvörun á milli þess náms sem við bjóðum og annarra ICF-vottaðra skóla á Íslandi hvað varðar grunntækni. Munurinn liggur í dýptinni og reynslunni.

Profectus hefur útskrifað yfir 600 nemendur í þremur heimsálfum. Við kennum þér ekki bara aðferðafræðina; við sérhönnuðum fyrir þig ferðalag fræðslu, sjálfsþekkingar og innri styrks. Með 5 útgefnar bækur á alþjóðamarkaði ásamt öðrum þálfunarverkfærum og áratuga reynslu, höfum við brúað bilið á milli hins harða og síkvika heim viðskiptau og djúprar mannlegrar hlýju. Við undirbúum þig fyrir sömu alþjóðlegu vottunina (ACC), en við gerum það með námsefni og verkfærum sem við höfum þróað sjálf og hefur sannað gildi sitt frá Íslandi til Suður-Afríku. 

Myndræn nálgun og stafrænt bakland í fremstu röð 

Við trúum því að sama hversu flókin hugmyndafræðin sé þá eigi hún samt að vera auðskilin og aðgengileg. Þess vegna notum við mestmegnis myndræna kennslu (visual coaching) með hundruðum mynda eftir listamanninn Jim Ridge í stað þurra textaglæra. Þetta skapar dýpri tengingu við efnið og auðveldar þér að muna meira og beita fræðunum betur.

Innifalið í náminu:

Tankurinn: Heils árs aðgangur að okkar einstaka stafræna kennslukerfi með yfir 100 kennslumyndböndum, verkfærum, sniðmátum, æfingum, fræðslugreinum og sjálfsprófum.
Verkfærakistan: Þú færð 216 bls. kennslumöppu, dagbókina „Geggin mín“ og okkar landsþekktu spilaverkfæri (Gildi, Styrkleikar, Tilfinningar og Spurningar).
Bækurnar: Þú færð þrjár af okkar vinsælustu bókum til eignar sem dýpka skilning þinn á faginu og leiðtogahlutverkinu.

Hvað gerist á milli lota? (Þjálfun og heimavinna) 

Æfingin skapar meistarann: Stuðningur á milli lota

Námið er hagnýtt því á milli lota lærir þú með öðrum hætti—með því að æfa þig markvisst.

  • Þrenningar: Þú vinnur náið með samnemendum í stuðningshópum.
  • Raunveruleg þjálfun: Þú markþjálfar utanaðkomandi aðila (lágmark 12 klst.) til að jarðtengja þekkinguna.
  • Mentor-tímar: Þú færð fundi með kennara til að losa um hindranir og fá svör við því sem brennur á þér.
  • Vinnuframlag: Reikna má með um 30 klukkustundum í heimavinnu á milli lota. Þetta er tíminn þar sem umbreytingin á sér stað.

Hver verður þú? (Sjálfsþekking og vöxtur) 

Í þessu námi lærir þú að færni þín sem markþjálfi snýst ekki bara um hvað þú gerir, heldur hver þú ert. Við förum í gegnum kröftuga sjálfsskoðun þar sem þú kortleggur:

  • Innri áttavitann: Þín raunverulegu gildi og hvernig þau stýra ákvörðunum þínum.
  • Tilfinningagreind: Að skilja og stýra eigin tilfinningum til að mæta öðrum af meira innsæi.
  • Hugrekki og hindranir: Að horfast í augu við óttann og læra að yfirstíga það sem heldur aftur af þér.
  • Styrkleika: Að hætta að einblína á veikleika og nýta það sem gerir þig einstaka/n/t.

Bókaðu kynningu

Vegabréf í alþjóðlegt samfélag (Vottun og réttindi)

Réttindi sem gilda um allan heim

Að námi loknu ert þú „Viðurkenndur markþjálfi“ með 80 klst. vottun frá International Coaching Federation (ICF).

Eftir námið hefur þú:

Gott vald á 8 hæfnisþáttum ICF og siðareglum þeirra.
Þekkingu á taugavísindum markþjálfunar og kraftmikilli spurningatækni.
Tekið 360° huggreiningu og fengið 12 bls. persónulega skýrslu.
Fengið fjóra af þeim tíu mentor-tímum sem þarf fyrir ACC-vottun.
Aðgang að Tankinum -kennslukerfi Profectus í eitt ár eftir að námi lýkur.

Hvað fannst þeim um námið

Nemendur fá aðgang að sérsniðnu kennslukerfi Profectus eitt ár eftir að námi lýkur. Þú getur skoðað kennslukerfið með því að smella HÉR. Í kerfinu hafa nemendur aðgang að námsgögnum, verkefnum og öðru stuðningsefni svo sem kennslumyndböndum, fag- og fræðigreinum ásamt öllum verkefnum sem tengjast markþjálfanáminu. Þar geta þeir einnig komið á og viðhaldið sambandi við núverandi og fyrrverandi nemendur Profectus, bæði hér- og erlendis. 

  Bókaðu kynningu

ICF-kröfur, reglur og yfirlýsingar

Hér að neðan er að finna allar þær almennu kröfur og yfirlýsingar sem okkur - sem ICF-vottuðum fræðsluaðila ber að virða og fylgja:

   

   

   

 Bókaðu kynningu

Verð: 598.000 kr. (559.000 stgr.)
Lengd: 75 klst. (8 dagar)

Innifalið í námskeiði

  • Kennsla hjá reyndum markþjálfum (ACC, PCC)

  • Persónuleg NBI-huggreining (að verðmæti 19.800)

  • Fjórir mentor tímar

  • Vinnubókin “Coaching - bringing out the best”

  • Bókin „Sigraðu sjálfan þig - aftur og aftur!"

  • Bókin „101 Powerful Questions - That Can Transform Your Life!"

  • Gildaspjöld, Tilfinningaspjöld, Styrkleikaspjöld, 99 Kraftmiklar spurningar og Sjónarspil (Verkfæri til vitundasköpunar)

  • Vönduð námsgögn og vinnubók og aðgangur að kennslukerfi Profectus í 12 mánuði eftir að námi lýkur.

  • Fullt fæði á meðan náminu stendur (kaffi, meðlæti og 6 x hádegisverður)

Bókaðu kynningu

Leiðbeinendur

Ingvar Jónsson
PCC-markþjálfi

Ingvar Jónsson

Ingvar hefur starfað við kennslu og fyrirlestrahald hér heima og erlendis síðustu 28 ár. Hann er með MBA frá CBS, er Alþjóða markaðsfræðingur, NBI-Master Trainer og EQ-i Practitioner. Hann hefur hlotið nokkrar alþjóðlegar viðurkenningar og verðlaun fyrir framlag sitt til mannauðsmála og markþjálfunar.

Ingvar hefur síðustu 7 ár skrifað og þróað nánast allt námsefni fyrir bæði Grunn- og Framhaldsnám Profectus. Hann er einnig rithöfundur og hefur síðustu ár skrifað nokkrar bækur sem eiga það sameiginlegt að fjalla að verulegu leyti um markþjáflun og nokkrar þeirra eru hluti af námsefni okkar. Þar má nefna: The Whole Brain Leader (2015) - Sigraðu sjálfan þig! (2018) - Hver ertu og hvað viltu? (2020) og Sigraðu sjálfan þig - aftur og aftur! (2022) og Leiðtoginn - valdeflandi forysta (2024) og nú síðast bókina 100 Powerful Questions - That Will Transform Your Life! (2024).

Matti Osvald Stefánsson
PCC-markþjálfi

Matti Ósvald Stefánsson

Matti Ósvald Stefánsson M.Th.- NLP Pr. er heilsuráðgjafi og PCC-markþjálfi. Hann hefur haldið mikinn fjölda fyrirlestra og námskeiða á undanförnum áratugum, þar sem hann miðlar reynslu sinni af þúsundum lífsstílsviðtala síðustu 25 ára. Matti hefur kennt í grunn- og framhaldsnámi í markþjálfun í rúman áratug og því einn af reyndustu kennurum í markþjálfun sem við eigum hér á landi.

Hann stundaði nám í International Professional School of Bodywork í USA frá 1988-1992 sem Massage Therapist og Holistic Health Practitioner með aukanámi frá Pacific School of Oriental Medicine. Hann hefur vottun frá The NLP Institute of Los Angeles og sem fagþjálfi frá ICF.



Ummæli

Hvað fannst fyrrverandi nemendum um námið?

Námskeiðið var frábært. Námið fór langt fram úr væntingum og mun nýtast í leik og starfi mínu sem stjórnandi. Ég hafði hugsað um þetta í nokkurn tíma að fara í markþjálfanám og er mjög ánægð með að hafa farið í námið hér. Ég hlakka til næstu skrefa með hópnum.

​​Lærði mjög margt um sjálfan mig og fékk afar gott verkfæri til að nota í vinnu minni sem félagsráðgjafi. Ég mæli með þessu námi fyrir alla sem eru að vinna í markmiðasetningu eða við hjálp til sjálfshjálpar með öðru fólki.

​​Þetta markþjálfanám hjá Profectus hefur breytt lífi mínu. Ekki aðeins hef ég lært að þekkja sjálfan mig upp á nýtt heldur eru viðskiptavinir mínir einnig að ná mun meiri árangri en áður.

​Efir markþjálfanámið hjá Profectus hef ég lært að hlusta meira og tala minna. Sem sálfræðingur hef ég náð dýpri tengingu við skjólstæðinga mína og þeir taka nú meiri ábyrgð á eigin bataferli.

​Kraftmikið námskeið sem gaf mér fullt af nýjum verkfærum í kistuna. Verkfærum sem ég get nýtt í starfi og einkalífi. Ég lærði aðferð sem er mun áhrifaríkari en þær leiðir sem ég hef notað til þessa við að hvetja aðra áfram í starfi.

​​Frábært nám. Hnitmiðað. Fær mann til að vilja læra meira og kynna þetta fyrir sem flestum. Mjög öflugt samskiptaform.

​​Námskeiðið var frábært! Ég geng út með fullt af ástríðu og eldmóð, með stútfulla verkfæratösku sem mun nýtast mér vel í leik og starfi. Umgjörð og skipulag námskeiðsins var til fyrirmyndar, alveg upp á 10! Ég lærði mikið inn á og um sjálfa mig sem er ekki síður mikilvægt í þessu ferli.

​Námskeiðið kemur til með að nýtast mér á svo margan hátt, bæði hvað varðar vinnu og einkalíf. Frábært verkfæri til að horfa á hlutina á annan fátt. Ég sé fyrir mér að nýta þetta til að efla liðsheild og innleiða nýja starfsmenn að teyminu.

​​Markþjálfanámið hefur gefið mér gríðarlega margt:

  • Aðferðin er afar góð og árangursrík.

  • Sjálfsþekkingin er meiri hjá sjálfri mér sem gerir að verkum að árangurinn verður meiri.

  • Ég hef náð að skilja og tileinka mér markþjálfahlutverkið þannig að ég get nýtt það til að hjálpa öðrum.

  • Markmiðasetning verður auðveldari

  • Námið hefur eflt sjálfsvitund mína og minna markþega

  • Öll verkfærin sem okkur voru færð eru afar góð og nýtileg.

  • Gaman að læra, ögra sér og varða framtíðina.

  • Þetta námskeið hefur nú þegar haft veruleg, jákvæð áhrif í mínu lífi.

Fyrrverandi nemendur úr öllum lögum þjóðfélagsins