Fréttir - Hvað er að gerast og hvað er framundan?

Við bjóðum Ástu Guðrúnu Guðbrandsdóttur hjartanlega velkomna í hópinn!

Fyrirtæki eru lítið meira en sá mannauður sem þau hafa yfir að ráða. Við hjá Profectus erum afar stolt af því að hafa fengið Ástu Guðrúnu Guðbrandsdóttur til liðs við okkur. Ásta mun — ásamt Matta Osvald Stefánsyni — taka að sér frekari þróun og uppbyggingu markþjálfanámsins hjá okkur ásamt öðrum verkefnum.